Innlent „
119 120 121 122 123 124 125 126 127 … 334 ›
„Nú er öryggi almennings fórnað á altari atvinnufrelsis“ Formaður bifreiðarstjórafélagsins segir að leigubílstjórar svindli á erlendum ferðamönnum í auknu mæli eftir að ný leigubifreiðalög tóku gildi í apríl á síðasta ári. Þetta hafi slæm áhrif á ásýnd landsins í augum ferðamanna sem veigra sér við að koma til landsins. Innlent 10.7.2024 11:55
Lán að losna, leiðtogafundur og Kótelettan á Selfossi Í hádegisfréttum fjöllum við um lánamál almennings en sérfræðingur hjá Landsbankanum segir að flestir lántakendur geri engar breytingar þegar vextir á lánum þeirra losna. Innlent 10.7.2024 11:40
Skvetti þvagi á fangaverði og maki saur á veggi Mohamed Kourani hefur gert fangavörðum á Litla-Hrauni lífið leitt síðan hann var færður þangað úr fangelsinu á Hólmsheiði. Heimildir Vísis herma að hann hafi beitt hinum ýmsu bellibrögðum gegn fangavörðum, meðal annars að skvetta á þá þvagi, hrækja á þá og skvetta á þá sjóðandi vatni. Þá hafi hann makað saur á veggi klefa síns. Innlent 10.7.2024 11:13
Óréttlæti sem verði að leiðrétta „Þetta er óréttlæti sem þarf að leiðrétta,“ segir formaður Blindrafélagsins um aðgengi blindra og sjónskertra að efni Ríkisútvarpsins. Hann segir lítið verða úr verki í Efstaleitinu þrátt fyrir fjölda fyrirspurna, bréfa og nýrra lausna. Innlent 10.7.2024 09:03
Allir austur, allir austur! Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur rekur upp herhóp á Bliku og hvetur alla til að drifa sig austur eða á Norðurlandið. Ástæðan: Langþráð blíða. Innlent 10.7.2024 08:36
Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. Innlent 9.7.2024 22:39
Fagnar umræðu um kynfæralimlestingar barna Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga. Innlent 9.7.2024 20:48
Sjáðu Kristján Má takast á loft í beinni Þýskur loftbelgur hefur sést á flugi yfir Rangárvöllum í dag en hann er hingað kominn vegna flughátíðarinnar Allt sem flýgur sem haldin verður á Helluflugvelli um næstu helgi. Kristján Már Unnarsson fréttamaður klöngraðist um borð og tókst á loft í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.7.2024 20:42
Þjófarnir hafi sýnt að þeir séu frambærilegir til vinnu Verkstjóri á stóru byggingarsvæði segir þjófa, sem steli köplum í skjóli nætur, hafa lítið upp úr þjófnaðinum, en tjónið geti verið mikið fyrir verktaka og byggingaraðila. Hann segist tilbúinn að ræða við þjófana, og ráðleggur þeim að sækja um vinnu hjá honum. Innlent 9.7.2024 20:01
BYKO kærir vegna sniðgöngulímmiða Einstaklingur sem setti límmiða til að hvetja til sniðgöngu ísraelskra vara í Byko hefur verið kærður fyrir eignaspjöll. Sigurður Pálsson forstjóri segir fyrirtækið taka hart á þjófnaði og eignaspjöllum en að það taki ekki afstöðu til skoðana fólks. Innlent 9.7.2024 19:39
Stjórnvöld verði að stöðva erlendu veðmálasíðurnar Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það ólíðandi að erlendar veðmálasíður fái að troða sér inn í íslenskt samfélag. Stjórnvöld þurfi að bregðast við. Innlent 9.7.2024 19:07
Skráðir í þjóðkirkjuna gætu orðið minnihluti innan nokkurra ára Skráðum í þjóðkirkjuna hefur fækkað um að meðaltali 1,86 prósentustig á ári síðastliðinn fimm ár. Haldi þessi þróun áfram verða Íslendingar skráðir í þjóðkirkjuna minnihluti landsmanna eftir fjögur ár. Innlent 9.7.2024 18:28
Allra augu á Biden og bein útsending úr loftbelg Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri. Innlent 9.7.2024 18:19
Sérsveitaraðgerð í Árbænum í dag Sérsveitin var kölluð til um kl 13:30 vegna gruns um að maður í Árbænum væri vopnaður hnífi. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvernig fór. Innlent 9.7.2024 18:07
Beinin sem fundust virðast vera af dýri Lögreglan segir að bein sem fundust við gatnaframkvæmdir í miðborg Reykjavíkur í morgun virðist við fyrstu skoðun vera af dýri. Innlent 9.7.2024 17:39
Lök staða í lónum Landsvirkjunar Staðan í lónum Landsvirkjunar er frekar lök, en vorleysing byrjaði seint, og júní var kaldur og þurr. Vonast er til þess að jökulbráð og haustrigningar bæti úr áður en nýtt vatnsár hefst þann 1. október. Innlent 9.7.2024 17:23
Telja sig vera með höfuðpaur fíknefnahóps í haldi Maður sem lögregla telur að sé höfuðpaur hóps sem er grunaður um innflutning og sölu fíkniefna hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þangað til í ágúst, en hann hefur verið í haldi síðan um miðjan apríl. Innlent 9.7.2024 17:04
Arkitektinn sem mótaði útivistarperlurnar látinn Landslagsarktitektinn Reynir Vilhjálmsson er látinn, 89 ára að aldri. Fáir hafa á ferli sínum haft jafn rík áhrif og hann á mótun mannngerðra útivistarsvæða hérlendis, bæði innan borgarlandsins sem og í bæjum víða um land. Innlent 9.7.2024 16:18
Ákærður fyrir nauðgun Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án hennar samþykkis. Innlent 9.7.2024 16:14
Staða drengja kolsvört og versnar enn Tryggvi Hjaltason, greinandi hjá CCP var fenginn til að vinna skýrslu um stöðu drengja í skólakerfinu fyrir barna- og menntamálaráðuneytið. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi. Innlent 9.7.2024 15:54
Rannsaka bein sem fundust í miðborginni Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar bein sem fundust á framkvæmdasvæði í miðborg Reykjavíkur í dag. Innlent 9.7.2024 15:02
Myndskeið af flugi loftbelgs yfir Rangárvöllum í morgun Fyrsta loftbelgsflugið yfir Rangárvöllum í morgun stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund og tókst að óskum. Ljósmyndir og myndskeið úr flugferðinni frá Flugmálafélagi Íslands fylgja þessari frétt. Innlent 9.7.2024 14:29
Ráðherra beitir sér ekki og eftirlitið í öngum sínum Matvælaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir breytingum á undanþáguheimildum í búvörulögum. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins gagnrýnir ráðherra og atvinnuveganefnd og segir vinnubrögðin óforsvaranleg. Innlent 9.7.2024 13:57
Mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé búið undir kynfæralimlestingar á börnum Það er mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé undirbúið fyrir fjölgun á limlestingum á kynfærum barna. Það er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis. Innlent 9.7.2024 13:57
Nota skuli sólarvörn þegar UV-stuðullinn fer upp í þrjá Styrkur útfjólublárrar geislunar frá sólu nær um þessar mundir hámarki hér á landi. Geislavarnir ríkisins minna á hinn svokallaða UV-stuðul sem segir til um styrk geislunarinnar, og mælast til að fólk gæti varúðar þegar nú þegar styrkurinn mælist mikill. Innlent 9.7.2024 13:28
„Gott veður alls staðar á sunnudag og mánudag“ Útlit er fyrir talsverða vætu á vesturhluta landsins næstu daga. Á Norðaustur- og Austurlandi verður hins vegar þurrt, bjart og hlýtt. Um og eftir helgi er útlit fyrir prýðisveður víðast hvar um landið. Um helgina er spáð 25 stiga hita á Egilsstöðum. Innlent 9.7.2024 12:57
Ný Evrópureglugerð um erfðaupplýsingar geri ráð fyrir ætluðu samþykki Ný Evrópureglugerð um sameiginlegt heilbrigðisgagnasvæði mun hafa það í för með sér að gert verður ráð fyrir ætluðu samþykki þátttakenda í rannsóknum um að fá mikilvægar upplýsingar um eigið heilsufar. Innlent 9.7.2024 12:55
„Þessi viðbúnaður er meira varúðarráðstöfun fyrir hann sjálfan“ Mikill viðbúnaður er nú á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, fanga með langa afbrotasögu sem bíður nú dómsuppkvaðningar fyrir stunguárás, að sögn formanns Afstöðu. Hann segir um að ræða veikan mann sem ekki eigi heima í fangelsi heldur á sjúkrastofnun. Afstaða hyggst vitja fangans í fangelsinu síðar í vikunni. Innlent 9.7.2024 12:02
Nýr verjandi Quang Le segir búið að dæma skjólstæðing sinn Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur tekið við máli Quang Lé og er nú verjandi hans. Sveinn segir skjólstæðing sinn grátt leikinn, og enginn Íslendingur hefði mátt þola annað eins. Innlent 9.7.2024 11:53
Líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum Landris undir Svartsengi hefur verið stöðugt síðustu daga og kvikuflæði heldur þar áfram. Líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á svæðinu á næstu vikum eða mánuðum. Innlent 9.7.2024 11:46