Innlent „
100 101 102 103 104 105 106 107 108 … 334 ›
„Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Það vakti athygli í gærkvöldi að innsetning Höllu Tómasdóttur sem sjöundi forseti lýðveldisins hafi ekki verið fyrsta frétt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Þess í stað var frétt um að samhæfing í viðbrögðum við jökulhlaupum væri ábótavant. Brýnar upplýsingar til almennings, að sögn vaktstjóra kvöldfrétta RÚV. Innlent 2.8.2024 18:01
Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Fjölmörg netbrotamál hafa verið kærð til lögreglu undanfarið, og lögreglan hefur hvatt fólk sérstaklega til að hafa varann á um komandi helgi. Brotin séu algengari um helgar en á virkum dögum. Lögreglan segir enga skömm í því að lenda í netsvikum, og hvetur fólk til að veigra sér ekki við að tilkynna brotin. Innlent 2.8.2024 17:40
Allar vefmyndavélarnar á einum stað Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst, það níunda i röð gosa á Reykjanesskaga undanfarin ár. Innlent 2.8.2024 16:48
Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Húkkaraballið fór fram í gærkvöldi í Vestmannaeyjum og gekk kvöldið prýðilega vel fyrir utan minniháttar slagsmál og óspektir að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns í Vestmannaeyjum. Innlent 2.8.2024 16:43
Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Varðstjóri á umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir umferðina vera farna að þyngjast út úr borginni. Fólk virðist frekar stefna Vesturlandsveg en Suðurlandsveg. Innlent 2.8.2024 16:10
Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Svíinn Erik H. Nelson, sem orðinn var bandarískur ríkisborgari, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins, fyrsta flugi sögunnar umhverfis Jörðina. Innlent 2.8.2024 16:07
Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Kona sem var ein á ferð ásamt tólf ára syni sínum var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði grunuð um innflutning fíkniefna til landsins frá Spáni. Innlent 2.8.2024 15:21
Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Framsóknarflokkurinn mælist með 7,2 prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og hækkar úr 6,6 prósent milli mánaða. Mælist flokkurinn með innan við helming af þeim 17,3 prósentum atkvæða sem hann fékk í síðustu alþingiskosningum. Fjármálaráðherra segir áherslu verða lagða á að ná niður verðbólgu og vöxtum á komandi þingvetri. Innlent 2.8.2024 15:00
Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hesturinn Kveikur frá Stangarlæk var felldur í gær eftir að hafa fengið hrossasótt í Hollandi. Hann var tólf vetra gamall. Innlent 2.8.2024 14:16
Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum vegna áreksturs. Sérfræðingur í samskiptum hjá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að göngin verði lokuð í einhvern tíma og beinir fólki um Hvalfjarðarveginn. Innlent 2.8.2024 14:06
Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Eftir úrhellisrigningu í nótt hafa fallið aurskriður á nokkrum stöðum á veginum norður í Árneshrepp. Vegagerðin vinnur að viðgerð á veginum í Veiðileysi þar sem hann grófst í sundur. Innlent 2.8.2024 14:05
Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Auknar líkur eru á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum, að mati náttúruvásérfræðinga hjá Veðurstofunni. Fjöldi daglegra skjálfta á Sundhnúksgígaröðinni fer hægt vaxandi. Innlent 2.8.2024 13:37
Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Framkvæmdastjóri Herjólfs segir mikinn vind og töluverða ölduhæð á morgun ekki hafa áhrif á ferðir Herjólfs fyrir Þjóðhátíð. Gripið hefur verið til sérstakra ráðstafanna á hátíðinni til að bregðast við veðurspánni en formaður Þjóðhátíðarnefndar segir Íslendinga sem betur fer vera öllu vanir. Innlent 2.8.2024 12:03
Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Guðmundur Ingi Guðbrandsson, starfandi formaður Vinstri grænna (VG) hefur áhyggjur af litlu fylgi flokksins. Hann segist ekki svartsýnn en telji að staðan í alþjóðamálum hafi áhrif á stuðning við stjórnarflokkana. Guðmundur hefur ekki ákveðið hvort hann bjóði sig fram til formanns á komandi landsþingi. Innlent 2.8.2024 11:56
Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Skjálftavirkni á Reykjanesi fer hægt vaxandi og fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands býst við gosi hvað úr hverju. Helstu áhyggjur lúta að því að sprungan komi til með að skera varnargarða við Grindavík. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 2.8.2024 11:52
Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður á fertugsaldri, sem er einn sakborninga í stórfelldu fíkniefnamáli, sem kennt hefur verið við potta og skemmtiferðaskip, er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa tekið annan mann kyrkingartaki, eins og segir í ákæru, og þrengt að öndunarvegi hans í að minnsta kosti sjö mínútur. Innlent 2.8.2024 11:49
Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn taka því alvarlega að fylgið sé í kringum sautján prósent í síðustu könnunum. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup er flokkurinn með 17,2 prósenta fylgi en það hefur aldrei mælst minna. Innlent 2.8.2024 11:33
Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til þegar tilkynnt var um slagsmál tveggja hópa í Mjódd í Breiðholti í gærkvöldi. Um var að ræða hópa unglinga, sem fóru sína leið eftir að lögregla hafði rætt við þá. Engin kæra hefur verið lögð fram vegna slagsmálanna. Innlent 2.8.2024 10:27
Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðurlandi og Ströndum yfir verslunarmannahelgina samkvæmt ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands. Innlent 2.8.2024 10:07
Úrkoman í júlí sló met Óvenjublautt var á vestanverðu landinu í júlí. Á nokkrum úrkomustöðvum var úrkoman sú mesta sem mælst hefur. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands yfir tíðarfarið í júlí. Innlent 2.8.2024 09:55
Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í dag hefst verslunarmannahelgin sem landsmenn hafa beðið í ofvæni eftir og hyggja margir á ferðir út á land. Þjóðhátíð heldur upp á 150 ára afmæli sitt um helgina og verður því margt um Reykvíkinginn í Eyjum og þar af leiðandi margt um mannlaus og innbrotsvæn heimili í höfuðborginni. Innlent 2.8.2024 09:15
Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Sálfræðingur segir slæmt sumarveður geta haft neikvæð áhrif á líðan en einnig látið fólk finna fyrir létti. Erfitt geti verið fyrir foreldra að hlaða batteríin í fríi með börnum og mikilvægt að viðurkenna að það fylgi því vinna að sinna þeim. Ef fólki líði illa með að sumarið hafi ekki staðið undir væntingum geti verið ástæða til að líta inn á við. Innlent 2.8.2024 07:01
Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Skiptar skoðanir hafa verið um það hvað kalla eigi Björn Skúlason, eiginmann Höllu Tómasdóttur, sem er fyrsti eiginmaður forseta Íslands. Björn sjálfur segist hafa heyrt bestu tillöguna í gær frá frú Vigdísi forseta, sem stakk upp á að hann yrði kallaður forsetagæi. Innlent 2.8.2024 07:00
Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, ef marka má dagbókarfærslu lögreglu. Þar segir meðal annars frá manni sem gistir fangaklefa á Hverfisgötu vegna gruns um að hafa brotið rúðu með því að kasta steini í hana og fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Innlent 2.8.2024 06:42
„Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða sem öðrum býðst og allt svoleiðis,“ sagði Halla Tómasdóttir er hún var aftur spurð út í bílakaup þeirra hjóna á dögunum. Hún segir málið dæmi um að stundum sé mikið rætt um eitthvað sem skiptir ekki meginmáli. Hjónin hafi lært af þessu mikilvæga lexíu. Innlent 1.8.2024 22:09
Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Halla Tómasdóttir segir að tilfinningin að mæta á Bessastaði sem húsráðandi sé hlý og góð, en hún hafi auðvitað svolítil fiðrildi í maganum. Hún kveðst vilja verða forseti sem leiðir fólk saman til samtals og samstarfs, og reynir að virkja kraftinn í þjóðinni til að finna hvert við ætlum að stefna. Innlent 1.8.2024 21:50
Borinn niður af klettaborginni Fyrr í dag voru björgunarsveitir á Blönduósi og Hvammstanga boðaðar út vegna ferðamanns sem hafði slasast efst í Borgarvirki. Innlent 1.8.2024 20:18
VG mælist með 3,5 prósent Vinstri græn mælast enn utan þings, samkvæmt nýjum þjóðarpúsli Gallúp. Fleiri myndu kjósa Sósíalistaflokkinn. Innlent 1.8.2024 20:11
Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Bændasamtökin furða sig á því að stóru kjötafurðarstöðvarnar noti ekki nýja upprunarvottun sem var gerð til að tryggja hag neytenda. Formaður samtakanna kallar eftir því að lög um upprunamerkingar verði hert Innlent 1.8.2024 19:39
Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Halla Tómasdóttir er orðin sjöundi forseti íslenska lýðveldisins. Í ræðu sinni í þingsal lagði Halla meðal annars áherslu á mannréttindi, samvinnu, frið, hlýju og jafnrétti. Hún sagði þjóðina smáa en knáa, sagði Íslendinga kjarkmikla þjóð, sem hefði visku og metnað til að velja mýkri leiðir í hörðum heimi. Innlent 1.8.2024 18:12
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent