Veiði
126 127 128 129 130 131 132 133 … 133 ›
30 laxar veiðst í Elliðaánum Í morgun höfðu 30 laxar veiðist í Elliðaánum, en veiði hófst fyrr í vikunni. Þegar ritstjóra bar að í morgun var verið að taka annan kvóta morgunsins úr Fossinum. Veiði 24.6.2011 12:03
Glæsileg opnun í Hafralónsá Hafralónsá í Þistilfirði byrjaði með miklum ágætum í fyrramorgun. Reyndar veiddist ekkert fyrir hádegi, en strax vel seinni partinn og á hádegi í gær voru tvímenningarnir sem opnuðu ána búnir að landa tíu löxum. Veiði 24.6.2011 08:18
Ytri Rangá opnar á morgun Ytri Rangá opnar á morgun og má segja að það sé komin ansi mikill spenningur í menn, Það er um vika síðan menn fóru að sjá fyrstu Laxana í Ytri Rangá. Fyrstu laxarnir sáust við Djúpós og Breiðabakka. þess má geta að að núna eru 2 laxar farnir í gegnum Árbæjarfoss sem er efri fossin sem þýðir að það gæti verið lax um alla á. Við ægisíðufoss hafa verið vandræði með Teljarann svo það er ekki hægt að segja með vissu hversu margir laxar hafa farið þar í gegn. Veiði 23.6.2011 18:35
Loksins líf í Straumunum Það hefur verið lítið um fréttir úr Straumunum það sem af er, og þá væntanlega vegna þess að lítið hefur verið að gerast. Þetta breyttist þó í gærkveldi Veiði 23.6.2011 09:53
Fyrsti laxinn úr Mýrarkvísl Fyrsti laxinn veiddist í Mýrarkvísl í Reykjahverfi í gærdag og þykir það snemmt á þeim bæ. Laxinn var engin smásmíði, 88 cm langur og ekki lúsugur. Veiði 23.6.2011 08:43
Líflegt í vötnunum Vötnin hafa mörg hver tekið vel við sér að undanförnu, sérstaklega þó á sunnanverðu landinu þar sem veður hefur verið skaplegra en nyrðra. Við heyrðum t.d. frábærar bréttir bæði frá Þingvallavatni og Úlfljótsvatni frá síðustu helgi. Veiði 23.6.2011 08:40
10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Þá eru fleiri Borgarfjarðarár að detta inn og Grímsá er ein af þeim. Opnunin gekk vel og það engum á óvart þegar fyrsti laxinn tók enda hafa menn séð laxa í ánna dagana á undan og það var viðbúið svo lengi sem aðstæður væru góðar að opnuninn gengi vel. Veiði 23.6.2011 08:30
Ótrúlegar fréttir úr Breiðdalsá Oftast hefur verið vart við laxa á stangli í Breiðdalsá í júní en ekki verður opnað fyrr en 1. júlí eins og verið hefur undanfarinn ár. En miðað við lýsingarnar sem berast að austan má kanski fara að endurskoða það! Veiði 22.6.2011 13:38
16 laxar komnir úr Elliðaánum Í morgun höfðu alls sextán laxar veiðst í Elliðaánum en veiði hófst þar í fyrradag. Veitt er á fjórar stangir í upphafi vertíðar. Í gækveldi höfðu 11 laxar gengið teljarann. Veiði 22.6.2011 13:28
Slæm umgengni við veiðivötn á Arnarvatnsheiði Í gærkvöldi voru Snorri Jóhannesson veiðivörður og Guðmundur Kristinsson formaður Veiðifélags Arnarvatnsheiðar á ferð um heiðina við eftirlit og viðhald fasteigna. Við Arnarvatns litla gengu þeir fram á afar slælega umgengni veiðimanna eftir ábendingu frá öðrum veiðimönnum sem vart áttu orð til að lýsa vanþóknun sinni. Veiði 22.6.2011 13:25
Laxá í Ásum farin að sýna laxana Samkvæmt heimildum þeirra Lax-á norðan heiða er það að frétta af heimamönnum sem höfðu farið og skyggnt Ásana af þjóðvegabrúnni og sáu ekki færri en 3 laxa liggja þar fyrir neðan. Það eru því líkur á að Ásarnir byrji snemma þetta árið, eins og þeir hafa reyndar gert undanfarin ár. Veiði 22.6.2011 13:17
Laxar að veiðast á öllum svæðum Fyrsti laxinn veiddist á Núpasvæðinu í Laxá í Aðaldal í dag og hefur þá verið sett í eða landað laxi/löxum á öllum svæðum Laxárfélagsins. Veiði 22.6.2011 09:14
Vatnsdalsá opnaði í morgun Núna er allt að komast á fullt. Árnar opna hver af annari og það er ekki að sjá annað en það stefni í gott sumar miðað við þessa byrjun. Langá opnar með 13 laxa og það bara á fyrri vaktinni, Kjósin með 9 laxa og það eru fleiri stórar ár að opna næstu daga. Veiði 21.6.2011 14:18
Langá opnaði í morgun með 13 löxum á 3 tímum Veiði hófst í Langá á Mýrum nú í morgunsárið. Segja má að opnunardagurinn sé eðlilegt framhald síðustu sumra, því eftir þrjá tíma voru þrettán laxar komnir á land. Veiði 21.6.2011 11:44
Plankað við ánna Eftir góða opnun í Laxá í Kjós hélt Jón Þór Júlíusson uppá daginn með góðu planki við ánna. Veiði 21.6.2011 10:09
Laxá í Aðaldal opnar með látum Það er orðið ansi langt síðan Laxá í Aðaldal tók jafnvel á móti veiðimönnum eins og hún gerði við þessa opnun. Þrír af stærstu löxunum sem komu á land voru 21, 20 og 17 pund! Það sáust laxar víða og menn velta því nú fyrir sér hvort drottningin sé að komast í þann gír sem menn muna eftir frá fornu fari. Veiði 21.6.2011 09:38
Átta laxar á land í Kjósinni á fyrstu vakt! Laxá í Kjós opnaði í morgun og það eru mörg ár síðan hún hefur opnað jafnvel. Sex laxar veiddust í Kvíslafossi, einn í Strengjunum og einn í Laxfossi. Fleiri laxar sáust en 8 laxar á land á fyrstu vakt er niðurstaðan, sem er frábær opnun. Veiði 20.6.2011 15:11
Flott opnun í Fnjóská þrátt fyrir kulda Þrátt fyrir að það sé búið að vera kaldranalegt í Fnjóskárdal undanfarið þá er laxinn mættur. Veiði 20.6.2011 13:25
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Veiði 20.6.2011 12:11
Fyrsti laxinn í Elliðaánum Gunnlaugur Sigurðsson, 79 ára fyrrverandi lögreglumaður, sem útnefndur hefur verið Reykvíkingur ársins, renndi fyrstur fyrir lax í Elliðaánum en veiði hófst þar nú klukkan sjö. Gunnlaugur var ekki lengi að ná í fyrsta laxinn eða um tíu mínútur. Veiði 20.6.2011 10:20
Laxá í Kjós opnaði í morgun Laxá í Kjós opnaði í morgun með laxi úr Kvíslarfossi eða kl. 8:22. Var það Ólafur Þór Ólafsson formaður veiðifélags Kjósarhrepps sem veiddi fyrsta laxinn. Falleg 10punda hrygna. Töluvert af laxi virðist vera gengin í Kjósina og fyrstu laxinn sást þar fyrir um þremur vikum síðan. Veiði 20.6.2011 10:09
Hítará á Mýrum opnaði í gær Veiði hófst í Hítará á Mýrum í gær. Eftir einn dag höfðu veiðimenn fengið tvo laxa og misst aðra tvo. Annar laxinn var smálax, en hinn 80cm hrygna. Veiði 20.6.2011 10:04
Norðurá komin yfir 100 laxa 100 laxar hafa veiðst í Norðurá í Borgarfirði það sem af er sumri. Kalt og hvasst hefur verið á Norðurárbökkum síðustu daga og aðstæður með erfiðara móti Veiði 20.6.2011 09:59
Laugardalsá opnuð Við vorum að fá fyrstu fréttir úr Laugardalsá en eins og menn vita opnaði laugardalsáin eftir hádegi í gær. Seinnipartin í gær var lítið að finna nema silung og eru komnir þónokkrir Urriðar. En strax í morgun komu tveir 10-12 punda laxar á land úr Dagmálafljóti og eru veiðimenn mjög ánægðir með veiðina.. Veiði 18.6.2011 12:19
Laxinn mættur í Breiðdalsá og fín veiði í Fögruhlíðará Í gær er unnið var að hreinsun laxastigans í fossinum Beljanda í Breiðdal kom í ljós lax í einu hólfi hans er vatnið var tæmt. Var hann háfaður upp og sleppt í ánn og að sögn þeirra sem komu að þessu var þetta um 7-8 punda hrygna með för eftir lús. Svo hann er mættur í Breiðdalinn enda hefur hin síðari ár oftast sést lax um þetta leyti og veiðin aukist mikið í júlí frá því sem áður var. Veiði hefst 1. júlí og ennþá eru lausar stangir á bilinu 20. - 26. júlí og svo aftur í lok ágúst og von er á metveiði enda var seiðasleppingin vorið 2010 nánast tvöfölduð frá því sem áður hefur verið! Veiði 18.6.2011 12:12
Veiðin að glæðast í vötnunum Steingrímur Valgarðsson er búinn að fara nokkrar ferðir í Kleifarvatnið og hefur verið að ná í fína urriða. Hér fyrir neðan má sjá mynd af honum með tvo fiska, 6 og 3,5 punda sem hann fékk í gær en eftir að myndin var tekin fékk hann aðra tvo fína urriða. Hann nefndi að mikill fiskur væri í vatninu og hann var stöðugt verið að narta í hjá honum. Hann var að veiða í suðurenda vatnins, ekki langt frá hverasvæðinu. Veiði 18.6.2011 12:05
Gott skot í Þingvallavatni í gærkvöldi Við heyrðum í Kristjáni Jónssyni sem var í Þingvallavatni í gær og sá gerði flotta veiði. Hann byrjaði á Leirutá og fékk þar 4 bleikjur frá 2-4 pund en svo datt takan niður og hann ákveður að færa sig. Hann fer í Vatnskot og út á litla hólmann og víkina þar fyrir innan. Þetta var seinni partinn í gær þegar hitastigið fór loksins upp í sumarhita. Veiði 16.6.2011 16:09
Góður gangur í Þverá/Kjarrá Þverá gerði ekkert annað en að batna í gær og það var líka líf í Kjarrá sem opnaði seinni partinn. Norðurá hefur og glæðst mikið að undanförnu. Það er enn kalt og hvasst að norðan í Borgarfirði. Veiði 16.6.2011 14:19
Silungasvæðið í Víðidalsá opnaði í gær Silungasvæðið í Víðidalsá opnaði í gær 15 júní og fengum við fréttir frá Ragnari á bakka veiðiverði í morgun en fyrsti dagurinn gaf 14 silunga sem er bara nokkuð fínn byrjunardagur og lofar góðu. Veiði 16.6.2011 14:15
Laxar farnir að sjást víða Núna næstu daga opna fleiri ár og það stefnir í góða opnun í þeim flestum ef eitthvað er að marka fréttir af laxgengd í þær ár sem ekki eru opnar. Það hafa sést laxar í Leirvogsá, Brynjudalsá, Flókadalsá, Reykjadalsá, Grímsá, Víðidalsá, Miðfjarðará svo að nokkrar séu nefndar. Þetta veiðisumar er að komast á fullt skrið. Veiði 16.6.2011 08:51