Sjávarútvegur
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 68 ›
Færeyingar fá núna raforku með virkjun sjávarstrauma Færeyingar eru byrjaðir að virkja sjávarföllin í samstarfi við sænskt þróunarfélag. Túrbína upp á 1,2 megavött er þegar komin í sjó og þykir reynslan það góð að farið er að undirbúa 200 megavatta raforkuframleiðslu úr sjávarstraumum við Færeyjar. Erlent 26.2.2024 21:00
Engar torfur fundist enn í loðnuleitinni Þriðja loðnuleitin frá áramótum, sem núna stendur yfir, hefur enn sem komið er ekki skilað neinni viðbót sem gefur tilefni til að ætla að grænt ljós verði gefið á loðnuveiðar þennan veturinn. Tvö leitarskip af þremur hafa lokið sinni yfirferð en það þriðja heldur áfram að leita næstu tvo til þrjá daga. Viðskipti innlent 26.2.2024 11:55
Kaldbakur festir kaup á Optimar Fjárfestingafélagið Kaldbakur, sem er í eigu tveggja stofnenda Samherja, hefur gengið frá kaupum á hátæknifyrirtækinu Optimar af þýska eignarhaldsfélaginu Haniel. Optimar framleiðir sjálfvirk fiskvinnslukerfi til notkunar um borð í fiskiskipum, á landi og í fiskeldi og er með viðskiptavini í meira en 30 löndum. Viðskipti innlent 26.2.2024 11:03
Segja að loðnan gæti verið að bíða eftir nýju tungli Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum velta því nú fyrir sér hvort loðnan hafi ekki enn fundist vegna þess að hún bíði eftir nýju tungli. Það er byggt á gamalli japanskri sjómannaspeki. Viðskipti innlent 22.2.2024 15:42
Loksins landað í Grindavík: „Ég er ekki tilbúinn til að kveðja þetta líf“ Mikið líf var í Grindavíkurhöfn í hádeginu þegar Vésteinn GK kom inn til löndunar í höfninni í fyrsta sinn síðan í janúar. Vatn komst á höfnina í morgun og eru Grindvíkingar bjartsýnir á framhaldið. Innlent 22.2.2024 14:47
Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun. Viðskipti innlent 21.2.2024 20:40
„Ég var algjörlega búinn og orkulaus“ „Ég er allt í einu bara á leiðinni niður í hafsdjúpið. Það eina sem komst að var að reyna að komast upp á yfirborðið. En ég var ekkert á leiðinni þangað. Það var allt á hvolfi og ég komst ekkert út,“ segir Júlíus Víðir Guðnason háseti sem taldi að hann væri að fara niður á hafsbotn með flutningaskipinu Suðurlandi þegar það var að sökkva fyrir norðan heimskautsbaug á aðfangadagskvöld árið 1986. Lífið 21.2.2024 07:01
Gistir í Grindavík í nótt: „Við erum nokkrir Grindjánar sem sjáum ekkert annað en Grindavík“ Heimakærir Grindvíkingar nýttu sér í dag breytt fyrirkomulag aðgengismála í bænum og sóttu ýmist vinnu eða huguðu að eigum sínum. Innlent 20.2.2024 21:17
Hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi áður en það verður of seint Umhverfisráðherra Washingtonríkis í Bandaríkjunum hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi. Hún segist óska þess að hún sjálf hefði bannað það í heimaríkinu áður en 350 þúsund eldislaxar sluppu út í náttúruna. Innlent 19.2.2024 10:00
„Við höfum fullan hug á því að fara inn“ „Það lifir ekkert fyrirtæki á því að hlaupa endalaust fram og til baka,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík. Hann kveðst hafa fullan hug á að hefja störf á ný í Grindavík og kallar eftir fljótvirkari vinnubrögðum yfirvalda þegar það kemur að því að meta hættu á vinnusvæði Vísis. Innlent 18.2.2024 23:28
Sjómenn samþykktu kjarasamning Sjómenn samþykktu kjarasamning til fimm ára með 62,84 prósent greiddra atkvæða. Formaður Sjómannasambandsins segir ánægjulegt að félagsmenn hafi ekki tekið mark á skítkasti og óhróðri sem beinst hafi að stjórn félagsins. Innlent 16.2.2024 16:36
Líklega engin stór loðnutorfa fyrir suðaustan Loðnutorfan sem skipstjórar þriggja uppsjávarveiðiskipa sáu undan Suðausturlandi í vikunni er ekki stór að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknarstofnunar. Ekki er komin niðurstaða en engar vísbendingar benda til þess að eitthvað stórt sé þarna á ferðinni. Viðskipti innlent 15.2.2024 16:30
Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar. Viðskipti innlent 14.2.2024 21:31
Rákust á stóra torfu og fara í loðnumælingar Fiskiskip á kolmunnaveiðum rakst á talsvert stóra uppsjávarfiskstorfu við aukaleit undan suðausturströnd landsins í gær. Hafrannsóknarstofnun mun hefja formlegar loðnumælingar í dag. Sviðsstjóri hjá Hafró segir um jákvæðar fréttir að ræða fyrir mögulega loðnuvertíð. Innlent 14.2.2024 10:31
Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar. Viðskipti innlent 12.2.2024 23:23
Sáralítið mælist af loðnu Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu er langt komin og segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunnar að „mjög lítið“ hafi mælst af loðnu. Eftir standi að fara yfir Vestfjarðamið og Suðausturmið. Innlent 12.2.2024 15:44
„Þá er þetta bara búið hjá okkur“ Uppsagnir fyrirtækja í Grindavík eru áhyggjuefni að mati bæjarbúa sem segja lítið eftir af bænum ef fyrirtækin fara. Starfsfólk nokkurra fyrirtækja vann að verðmætabjörgun í bænum í dag en hjá sumum þeirra er tjónið þegar orðið gífurlegt. Innlent 7.2.2024 21:09
130 starfsmenn Vísis falla af launaskrá Í dag fengu 130 starfsmenn Vísis bréf þar sem þeim var tjáð að þeir yrðu teknir af launaskrá fyrirtækisins og fari á úrræði ríkisins. Ástæðan séu náttúruhamfarirnar í Grindavík, þar sem fyrirtækið hefur verið starfrækt. Viðskipti innlent 6.2.2024 19:36
Sjómenn og SFS ná saman um nýjan kjarasamning Nýr kjarasamningur á milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) verður undirritaður í dag í húsnæði ríkissáttasemjara. Samningar á milli aðila hafa verið lausir frá árinu 2019, en á síðasta ári var nýr kjarasamningur felldur í atkvæðagreiðslu sjómanna. Innlent 6.2.2024 14:14
Ágæt von um að loðnan sem upp á vantar finnist Loðnubrestur með tugmilljarða efnahagsáfalli blasir við ef lítið finnst í loðnuleit þriggja fiskiskipa sem hefst í kvöld. Leiðangursstjórinn telur samt ágæta von um að nægilegt magn finnist til að hægt verði að leyfa einhverjar veiðar. Viðskipti innlent 5.2.2024 22:34
Hópuppsögn í Grindavík: „Erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu“ „Þetta er erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu, að gera þetta. Það var bara ekki annað hægt,“ segir Hermann Th. Ólafsson, framkvæmdastjóri Stakkavíkur ehf. í samtali við fréttastofu vegna hópuppsagnar sem fór fram hjá fyrirtækinu um nýliðin mánaðamót. Viðskipti innlent 2.2.2024 14:58
Ráðinn öryggisstjóri Síldarvinnslunnar Páll Freysteinsson hefur verið ráðinn nýr öryggisstjóri Síldarvinnslunnar og hóf hann störf fyrr í dag. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:21
Hvalur vill nýtt leyfi til fimm eða tíu ára hið minnsta Hvalur hf. hefur óskað eftir endurnýjun leyfis til veiða á langreyði. Í erindi fyrirtækisins til matvælaráðuneytisins segir að það sé rétt og eðlilegt að leyfið sé til fimm ára og framlengist um ár til viðbótar í lok hvers starfsárs eða verði að öðrum kosti til tíu ára. Innlent 31.1.2024 06:44
Ríkið greiði starfsmönnum Hvals laun Hvalur hf. fer fram á að íslenska ríkið greiði starfsmönnum fyrirtækisins laun fyrir þann tíma sem bann stjórnvalda gegn hvalveiðum gilti í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í kröfu Hvals sem send var á ríkislögmann. Viðskipti innlent 25.1.2024 21:17
Sesselja Ingibjörg stýrir frumkvöðlastarfi Samherja Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Driftar EA á Akureyri, félags sem hefur það að markmiði að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu. Stofnendur félagsins eru frændurnir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, kenndir við Samherja. Viðskipti innlent 25.1.2024 09:48
Tugmilljarða verðmæti í húfi og halda í vonina um loðnuvertíð Ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækja halda enn í vonina um loðnuvertíð í vetur þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi tilkynnt í dag að enginn loðnukvóti verði gefinn út eftir nýafstaðna loðnuleit. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið. Viðskipti innlent 24.1.2024 19:48
Halda fast í fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar Hafrannsóknastofnun mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð eftir mælingar síðustu vikuna. Ástæða þess er að lítið mældist og sterkar líkur á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi. Innlent 24.1.2024 13:11
Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar. Innlent 22.1.2024 18:48
Pískrað milli þingmanna að hvalveiðar verði færðar milli ráðuneyta Þingmaður Viðreisnar segir pískrað inni í Alþingi um að hvalveiðar verði færðar úr matvælaráðuneytinu yfir í umhverfisráðuneytið. Svandísi verði þannig forðað frá vantrausti í nafni náttúruverndar og um leið fái Sjálfstæðisflokkurinn stjórn á málaflokknum. Innlent 21.1.2024 18:17
„Alvarlegra og langvinnara en menn gátu logið að sjálfum sér“ Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Vísis í Grindavík segir þann tímapunkt runninn upp að meta þurfi hvort það sé þess virði að reyna að halda lífi í bænum með fyrirtækjarekstri. Banaslys og eldgos hafi gert það að verkum að algjör umbreyting hafi orðið á viðhorfi fólks til veru í bænum. Innlent 21.1.2024 13:00
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn