Stj.mál
69 70 71 72 73 74 75 76 77 … 187 ›
Ráðherrar fóru gegn ráðgjöf HSBC Ráðgjafi einkavæðingarnefndar í sölu ríkisbankanna 2002, HSBC, vildi að skilyrði yrðu sett um verðtilboð Samson í Landsbankann svo tryggja mætti hæsta verðið. HSBC mælti einnig gegn því að farið yrði í viðræður við Samson svo snemma í söluferlinu. Ráðherranefndin hunsaði ráðin. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 14:58
Embætti hafi brugðist skyldum Ríkislögreglustjóraembættið hefur brugðist skyldum sínum í rannsókn og útgáfu ákæru í Baugsmálinu að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún vísar hins vegar ásökunum efnhagsbrotadeildar frá því í morgun um að hún hafi sagt embættinu handstýrt af yfirboðurum sínum alfarið á bug. Innlent 17.10.2005 23:48
Styður framboð til öryggisráðs Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður leggur áherslu á að Ísland standi við framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í dag. Er það mat stjórnar sambandsins að Ísland eigi fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna og hafnar hún málflutningi þess efnis að Ísland hafi ekki burði til að sitja í ráðinu. Innlent 17.10.2005 23:47
Ítrekaði framboð Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra ítrekaði framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sem hann hélt á allsherjarþingi samtakanna í gærkvöldi. Hann tók þó vægar til orða en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerði í síðustu viku og sagði aðeins að Ísland hefði áður lýst áhuga á að taka virkan þátt í starfi öryggisráðsins. Innlent 17.10.2005 23:46
Æðstu menn fari frá vegna fúsks Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af. Hann segir á heimasíðu sinni að í kjölfar þess að Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði Baugsmálinu frá í heild sinni, þar sem ákærurnar hafi verið ótæk moðsuða, verði dómsmálaráðhera að taka í taumana því það sé á hans ábyrgð að stofnanir ráðuneytisins séu ekki í höndum fúskara. Innlent 17.10.2005 23:46
Vill að æðstu menn segi af sér Jóhannes Jónsson í Bónus vill að dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar segi af sér eftir að héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá. Össur Skarphéðinsson alþingismaður tekur í sama streng. Dómsmálaráðherra segir að réttarkerfið verði að fá tóm til að vinna sína vinnu. Innlent 17.10.2005 23:47
Embætti sé í höndum óhæfra manna Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af vegna slælegrar frammistöðu í Baugsmálinu og málverkafölsunarmálinu. Innlent 17.10.2005 23:46
Flugvöllur fari ekki úr borginni Verkalýðsfélag Húsavíkur varar í dag við þeirri umræðu að flytja innanlandsflugið. Reykjavík sé höfuðborg og hafi miklar skyldur gagnvart öllum Íslendingum, ekki bara höfuðborgarbúum. Þar séu flestar ríkisstofnanir staðsettar og hátæknisjúkrahús sem byggt hafi verið fyrir opinbert fé. Innlent 17.10.2005 23:46
Mótmæla stefnu í auðlindamálum Náttúruvaktin hyggst efna til mótmælastöðu fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur í dag kl. 17.45, en þá koma þátttakendur á alþjóðlegri rafskautaráðstefnu til móttöku í Ráðhúsinu. Í tilkynningu frá Náttúruvaktinni kemur fram að enn sé verið að auglýsa Ísland sem ódýrt orkuver og málmbræðsluland. Innlent 17.10.2005 23:47
Steinbítur friðaður við hrygningar Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni, þ.e. frá og með 24. september næstkomandi til loka marsmánaðar 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að reglugerðin sé gefin út að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar og í samráði við Landssamband íslenskra útvegsmanna. Innlent 17.10.2005 23:47
Deildu um jafnræði kynja í styttum Meirihluti og minnihluti í borgarstjórn Reykjavíkur tókust á um jafnræði kynjanna í styttum Reykjavíkur á fundi sínum í gær í kjölfar tillögu Kjartans Magnússonar sjálfstæðismanns um að reisa styttu af Tómasi Guðmundssyni borgarskáldi í miðbænum. R-lista menn bentu á að mun fleiri styttur væru af körlum en konum í borginni og lögðu ajálfstæðismenn þá til að styttum af konum yrði fjölgað ef það mætti þá verða til þess að koma Tómasi líka á stall. Innlent 17.10.2005 23:46
Reglugerð marki stefnubreytingu Ný reglugerð félagsmálaráðherra um áhættustýringu Íbúðalánasjóðs fer fyrir brjóstið á Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja sem segja hann marka stefnubreytingu. Innlent 17.10.2005 23:46
Sneru bökum saman í flugvallarmáli R-listinn og Sjálfstæðisflokkurinn sneru bökum saman á borgarstjórnarfundi í gær og kolfelldu tillögu F - listafulltrúans Ólafs F. Magnússonar um að tryggja áframhald innanlands- og sjúkraflugs á höfuðborgarsvæðinu. Enn fremur að ekki komi til greina að flytja starfssemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur. Innlent 17.10.2005 23:46
Deila um val á fulltrúum á þing Núverandi og fyrrverandi valdhafar í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, eru komnir í hár saman vegna vals á fulltrúum á þing Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þrjátíu og einn fyrrverandi trúnaðarmaður félagsins hefur undirritað yfirlýsingu þar sem stjórn Heimdallar er sökuð um valdníðslu og ólýðræðislegar tilraunir til að tryggja frambjóðendum sér þóknanlegum kjör í embætti formanns og varaformanns Sambands ungra sjálfstæðismanna. Innlent 17.10.2005 23:47
Starfsmenn Kópavogsbæjar semja Starfsmannafélag Kópavogs hefur undirritað nýjan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Kópavogsbæjar. Þetta er í annað skiptið í ár sem starfsmannafélagið og launanefndin ná samkomulagi en fyrri samningur þeirra var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Innlent 17.10.2005 23:46
Sharon notaði ólöglegar aðferðir Ísraelsk sjónvarpsstöð greindi frá því í gærkvöldi að Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, hefði notað ólöglegar aðferðir við að fjármagna kosningabaráttu sína í nýlegri heimsókn til New York. Á boðsmiða á samkomuna með Sharon sagði að gert væri ráð fyrir að þeir sem á hana kæmu gæfu minnst tíu þúsund dollara í kosningasjóði Sharons. Erlent 17.10.2005 23:45
Tveir vilja fyrsta sætið Jóhannes Valdemarsson framkvæmdastjóri hefur ákveðið að bjóða sig fram til 1. sætis í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi, sem fram fer laugardaginn 12. nóvember. Áður hefur Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi boðið sig fram í 1. sætið. Innlent 17.10.2005 23:45
Símapeningarnir í jarðgangagerð Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Vestfirðinga, var hætt kominn á veginum um Óshlíð á laugardag. Hann segist vongóður um að ríkisstjórnin fallist á jarðgangagerð og vill að símapeningarnir verði notaðir til þess. Innlent 17.10.2005 23:45
Mannréttindanefndin rúin trausti "Mun meiri vinnu er þörf," sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra um umbætur á skipulagi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sinni á sextugasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi. Davíð áréttaði að taka þyrfti á mannréttindamálum með meira afgerandi hætti en verið hefur. Innlent 17.10.2005 23:45
Joschka Fischer hættir Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands og leiðtogi Græningja, lýsti því yfir síðdegis að hann ætlaði sér að draga sig í hlé í framlínu þýskra stjórnmála. „Stórum hluta af lífi mínu síðustu tuttugu árin er nú að ljúka,“ sagði Fischer á blaðamannafundi. Erlent 17.10.2005 23:45
Fimmtán hafa boðið sig fram Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að halda prófkjör vegna borgarstjórnarkosninganna 4. og 5. nóvember. Framboðsfrestur er ekki runninn út, en fimmtán hafa tilkynnt framboð í eitthvert tólf efstu sætanna. Innlent 17.10.2005 23:45
Nóg komið af körlum Tillaga Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um að gerð verði stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi og henni verði komið fyrir á áberandi stað í borginni var vísað til menningar- og ferðamálaráðs. Innlent 17.10.2005 23:45
Tyrkir hefja viðræður við ESB Tyrkir hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið þriðja október næstkomandi. Þetta varð ljóst eftir að Tassos Papadopoulos, forseti Kýpur, lýsti því að ekkert hinna tuttugu og fimm aðildarríkja sambandsins legðist á móti aðildarviðræðum við Tyrki. Erlent 17.10.2005 23:45
Talar við leiðtoga allra flokka Angela Merkel lýsti því yfir fyrir stundu að hún ætlaði sér að tala við leiðtoga allra stjórnmálaflokka landsins um stjórnarmyndun í Þýskalandi. Ingólfur Bjarni Sigufússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Berlín. Innlent 17.10.2005 23:43
Staðið verði við ákvörðunina Samband ungra framsóknarmanna tók í gærkvöldi undir þá ályktun landsþings Landssambands framsóknarkvenna í gær að staðið verði við þá ákvörðun, sem Halldór Ásgrímsson greindi frá á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna fyrir helgi, að standa beri við fyrri ákvarðanir um framboð Íslendinga til setu í öryggisráðinu árin 2009-2010. Innlent 13.10.2005 19:47
Merkel segist hafa skýrt umboð Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi, hefur í dag minnt Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga sósíaldemókrata, á það að hún hafi skýrt umboð til að mynda stjórn. Schröder hefur í dag reynt að fá frjálslynda demókrata til liðs með sósíaldemókrötum og græningjum. Erlent 17.10.2005 23:43
Geir frekar fylgjandi framboðinu Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. Innlent 17.10.2005 23:43
Vilja skuldbundna friðhelgi Norður-Kóreumenn eru nú sagðir vilja hverfa frá áformum sínum um kjarnorkutilraunir og leyfa eftirlitsferðir alþjóðlegra eftirlitsmanna, fái þeir í staðinn vilyrði um vernd og fjárhagslegan stuðning Kínverja og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn sagðir vilja skuldbinda friðhelgi við stjórnina í Pyongyang. Innlent 17.10.2005 23:43
Júlíus Vífill styður Vilhjálm Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, sem gefur nú kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðsiflokksins í Reykjavík, segist styðja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem borgarstjóraefni flokksins. Þetta kom fram í þættinum Ísland í bítið í morgun. Innlent 17.10.2005 23:43
Tíu takast á um sex sæti Framboðsfrestur forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor rann út á föstudag, en forvalið verður 1. október. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram 28. og 30. september. Innlent 17.10.2005 23:43