Stj.mál
57 58 59 60 61 62 63 64 65 … 187 ›
Á fjórða þúsund hefur kosið í prófkjöri Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík hófst í dag og höfðu á fjórða þúsund manna kosið nú skömmu fyrir fréttir. Um nítján þúsund manns hafa kosningarétt, en þeim hefur fjölgað rúm tíu prósent á undanförnum vikum. Innlent 4.11.2005 18:38
Gísli Marteinn með forskot en þriðjungur óákveðinn Gísli Marteinn Baldursson nýtur meira fylgis en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í baráttunni um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga samkvæmt niðurstöðum könnunar sem 365 Nýmiðlun gerði á fylgi frambjóðenda. Athygli vekur að rúmlega þriðjungur segist enn óákveðinn. Könnunin sem var póstlistakönnun, var gerð fyrir stuðningsmenn Gísla Marteins og bárust rúmlega 4.500 svör. Innlent 4.11.2005 14:29
Bensínstyrkur ekki afnuminn Bensínstyrkur ellilífeyrisþega og öryrkja verður ekki afnuminn. Þetta sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja hér á landi á Alþingi í dag. Alls nær styrkurinn til 4000 ellilífeyrisþega og 2650 öryrkja. Innlent 4.11.2005 15:06
Ágreiningur um kjör í stjórn Framsóknarmenn í Reykjavík ætla að efna til opins prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Stuðningyfirlýsing við Framsóknarflokkinn dugir til að vera gjaldgengur í prófkjörinu. Fundur í kjördæmaráði Reykjavíkurkjördæmis-suður leystist upp í gær vegna ágreinings um kjör í stjórn. Innlent 4.11.2005 10:42
Bandarísk stjórnvöld hafi leyfi íslenskra til fangaflugs Össur Skarphéðinsson fullyrðir á heimasíðu sinni að bandarísk stjórnvöld hafi formlegt leyfi íslenskra stjórnvalda til að fljúga með meinta hermdarverkamenn í haldi um Ísland. Þetta megi lesa út úr yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, frá 18. mars 2003, sem birt hafi verið á vef Hvíta Hússins 26. mars sama ár. Innlent 3.11.2005 23:32
Rauð bindi grundvallaratriði í kosningum Hart er barist um atkvæði átján þúsund Reykvíkinga sem eru á kjörskrá Sjálfstæðisflokksins og hafa í hendi sér hver verður kosinn borgarstjóraefni í prófkjörinu um helgina. Frambjóðendurnir leggja ýmislegt á sig til að heilla kjósendur upp úr skónum með hugmyndaauðgi og ekki síst réttu ímyndinni, þar sem rauð bindi eru grundvallaratriði. Innlent 3.11.2005 20:16
Telur nýju Hringbrautina mistök Borgarfulltrúi R-listans telur nýju Hringbrautina vera mistök því hún taki allt of mikið landrými. Hann segir að grafa verði götuna niður eða byggja yfir hana þegar Vatnsmýrin verði byggð upp. Innlent 3.11.2005 18:30
Lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól Ríkisstjórnin situr hjá á meðan glæpafyrirtæki brjóta á fátæku erlendu verkafólki, segir Össur Skarphéðinsson og vill lög hið snarasta. Félagsmálaráðherra segir að íslensk fyrirtæki sem taka þátt í vitleysunni ættu að skammast sín, öllum beri að virða leikreglur á vinnumarkaði enda sé Ísland ekkert fríríki í þessum efnum. Hann lofar lögum um starfsmannaleigur fyrir jól. Innlent 3.11.2005 18:10
Prófkjör Samfylkingar í Hafnarfirði Næstkomandi laugardag fer fram lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Nú þegar eru tvö þúsund manns á kjörskrá og leyfilegt er að skrá sig í flokkinn fram að kjörfundi. Kjörfundur hefst klukkan tíu og stendur til sex og kjörgengir eru þeir sem orðnir eru sextán ára á kjördag. Innlent 3.11.2005 16:42
Vilja rannsókn á þróun valds og lýðræðis Efnahagsleg völd eru að færast á hendi færri manna og því er mikilvægt að lýðræðið sé virkt og Alþingi samþykki reglur til að geta veitt framkvæmdavaldinu aðhald við samningu reglna fyrir samfélagið. Þetta kom meðal annars fram í máli þingmanna Samfylkingarinnar við umræður um þingsályktunartillögu sem þeir leggja saman fram um að fram skuli fara rannsókn á þróun valds og lýðræðis í íslensku samfélagi. Innlent 3.11.2005 15:58
Sundabrautarmálið aftur á byrjunarreit? Meirihlutinn í borgarstjórn er kominn aftur á byrjunarreit í Sundabrautarmálinu að mati fulltrúa sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Fulltrúi meirihlutans vísar þessu á bug og kennir prófkjörsskrekk um yfirlýsingagleði sjálfstæðismanna. Innlent 3.11.2005 15:08
Í berhögg við íslensku stjórnarskrána Það er brot á alþjóðlegum samningum og gengur í berhögg við íslensku stjórnarskrána að heimila flug um íslenska lofthelgi með fanga, til yfirheyrslu í löndum þar sem þeir geta átt von á pyntingum. Þetta segir meðal annars í greinargerð með þingsályktun sem Össur Skarphéðinsson og níu aðrir Samfylkingarmenn ætla að leggja fyrir Alþingi. Innlent 3.11.2005 14:05
Lofar lögum um starfsmannaleigur Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill strax láta setja lög um starfsmannaleigur og undrast hægagang ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Félagsmálaráðherra lofar lögum um starfsmannalegur fyrir jólafrí. Innlent 3.11.2005 12:06
Jón hafnar því að hafa svikið samkomulagið Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hafnar því alfarið að hann eða ríkisstjórnin hafi svikið samkomulag sem Jón gerði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við forystumenn öryrkja árið 2003, að sögn aðstoðarmanns hans. Innlent 3.11.2005 10:12
62 prósent borgarbúa vilja fremur Vilhjálm Sextíu og tvö prósent borgarbúa vilja heldur sjá Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í næstu borgarstjórnarkosningum en Gísla Martein Baldursson samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir stuðningsmenn Vilhjálms. Innlent 2.11.2005 23:25
Fangaflutningar til Alþingis Þingsályktunartillaga um fangaflutninga í íslenskri lögsögu verður lögð fram á Alþingi á næstu dögum. Tilefni hennar eru meintir fangaflutningar bandarísku leyniþjónustunnar um íslenska lofthelgi en sumar flugvélanna á hennar vegum hafa haft viðdvöl hér á landi á undanförnum árum. Innlent 2.11.2005 22:35
Deilt um áreiðanleikann Af þeim sem taka afstöðu í skoðanakönnun Gallup um fylgi frambjóðenda í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík vilja 62 prósent sjá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í fyrsta sæti framboðslista flokksins í næstu borgarstjórnarkosningum en 38 prósent Gísla Martein Baldursson. Innlent 2.11.2005 23:02
Alfreð boðin Landsvirkjun Alfreð Þorsteinssyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, hefur verið gert tilboð um stjórnarformennsku í í Landsvirkjun ákveði hann að hætta í borgarpólitíkinni. Málið tengist hugsanlegri sölu Orkuveitunnar. Innlent 2.11.2005 22:30
Seðlabankinn hækki bindi- og lausafjárskyldu bankanna Útgáfa skuldabréfa í krónum erlendis hefur aukist um ellefu milljarða króna á tveimur dögum. Vegna þessa hækkaði gengi krónunnar enn í morgun og evran hefur ekki verið lægri gagnvart henni í meira en fimm ár. Prófessor í hagfræði segir að Seðlabankinn verði að hækka bindi- og lausafjárskyldu bankanna til að mæta ört vaxandi verðbólgu. Innlent 2.11.2005 20:25
Getur vel hugsað sér að verða borgarstjóraefni Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri-grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor, getur vel hugsað sér að vera borgarstjóraefni í samstarfi við félagshyggjuflokkanna að afloknum kosningum. Innlent 2.11.2005 17:21
Vill 300 milljónir í hestaíþróttina Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ætlar að leggja til við ríkisstjórnina á næstu vikum eða mánuðum að allt að 300 milljónir króna fari til uppbyggingar hestaíþróttarinnar á landsbyggðinni. Hann vonast til að eitthvað fjármagn fáist strax á næsta ári. Innlent 1.11.2005 18:22
Vilja álver við Húsavík Einar Már Sigurðarson og Kristján L. Möller, þingmenn Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, telja vænlegast að nýtt álver á Norðurlandi rísi við Húsavík, einkum með tilliti til nálægðar við öflug orkusvæði og mikillar samstöðu Húsvíkinga. Innlent 1.11.2005 22:18
Mest ánægja með störf Geirs Haarde Ánægja landsmanna með störf utanríkisráðherra og landbúnaðarráðherra hefur aukist mjög á hálfu ári. Dómsmálaráðherra vermir botninn í könnun Gallup. Innlent 1.11.2005 22:18
Tveir bæjarfulltrúar gefa ekki kost á sér Prófkjör Samfylkingingarinnar í Hafnarfirði verður haldið nú á laugardag. 21 frambjóðandi er um átta sæti, fjórtán karlar og sjö konur. Nú hefur Samfylking sex bæjarfulltrúa af ellefu og er því líklegt að harðast verði barist um sex efstu sætin. Innlent 1.11.2005 22:18
Borgarstjórn leggur fram fimm milljónir vegna skjálfta Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að leggja fimm milljónir króna til hjálparstarfs í þágu fórnarlamba jarðskjálftanna í Pakistan í síðasta mánuði. Tillaga borgarstjóra þar að lútandi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn. Innlent 1.11.2005 19:13
Stjórnvöld hafi ekki upplýsingar um fangaflug CIA Íslensk stjórnvöld hafa ekki upplýsingar um flutninga Bandaríkjamanna á meintum hryðjuverkamönnum um íslenska lofthelgi. Innlent 1.11.2005 15:57
Sljóleiki gagnvart ofurkjörum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur að kaupréttarsamningar helstu stjórnenda Kaupþings banka orki tvímælis en þeir séu ekki einangrað tilvik, svona samningar séu mun útbreiddari en áður. Innlent 1.11.2005 15:51
Ráðherra spurður um fangaflug í íslenskri lofthelgi Formaður Vinstri grænna hefur lagt fram fyrirspurn til utanríkisráðherra um meint fangaflug CIA um íslenska lofthelgi. Svo virðist sem bandaríska leyniþjónustan CIA noti Keflavíkurflugvöll oft sem viðkomustað fyrir svonefndar draugaflugvélar sínar, sem sagt er að séu notaðar til að flytja grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar eru leyfðar við yfirheyrslur. Innlent 1.11.2005 12:55
Staðnað form brotið upp Árni Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðvesturkjördæmis, segist ekkert hafa vitað um óánægju sveitarstjórnarmanna með breytt fyrirkomulag á árvissum fundi þingmanna kjördæmisins með þeim í kjördæmaviku. Í gær kom fram að sumir hugðust sniðganga fund með þingmönnunum sem haldinn var í Kópavogi. Innlent 31.10.2005 22:19
Skipar nefnd um hollara mataræði og meiri hreyfingu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem greina á vanda sem tengist óhollu mataræði, offitu, átröskun og hreyfingarleysi og koma með tillögur að samræmdum aðgerðum til að taka á vandamálum sem tengjast þessu. Innlent 31.10.2005 16:56