Innlent

Al­var­legt slys við Brúarárfoss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brúarárfoss í Brúará.
Brúarárfoss í Brúará. Vísir/KMU

Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir liðsinni þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna slyss við Brúarárfoss í Bláskógabyggð á Suðurlandi. Björgunarsveitarfólk hefur verið kallað á vettvang.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurlandi er slysið nýskeð og vinna á algjöru frumstigi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, tekur í sama streng í samtali við fréttastofu, og segir lítið liggja fyrir um málið að svo stöddu, en björgunarsveitir séu að vinna í málinu.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtali við fréttastofu, að tvær þyrlur hafi verið sendar á vettvang. Önnur þeirra hefur þrjá kafara innanborðs.

Brúarárfoss er vinsæll ferðamannastaður á Suðurlandi. Hann er þekktur fyrir fagurbláan lit sinn og þangað leggja fjölmargir ferðamenn, Íslendingar sem erlendir, leið sína allan ársins hring.

Banaslys varð í Brúará sumarið 2022 þegar kanadískur ríkisborgari kom syni sínum til bjargar sem fallið hafði í ána. Maðurinn féll hins vegar sjálfur í ána og lést. Brúará getur verið mjög straumhörð og köld.

Fréttin er í vinnslu.


Veistu meira um málið? Áttu myndefni af svæðinu? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×