Innlent

Segir gagn­rýni kvenna á leik­skóla­stefnu Kópa­vogs tví­skinnung

Kjartan Kjartansson skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður, og Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður, og Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi. Vísir

Þingkona Sjálfstæðisflokksins furðar sig á að konur sem segist tala fyrir kvenréttindum gagnrýni breytingar sem flokkur hennar gerði í leikskólamálum í Kópavogi. Hún sakar gagnrýnendur breytinganna um tvískinnung.

Deilt hefur verið um ágæti breytinga sem bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerðu á skipulagi leikskólamála í fyrra. Þær fólu meðal annars í sér að sex tíma leikskóladvöl á dag varð gjaldfrjáls en gjöld fyrir lengri vistun voru hækkuð á sama tíma. Þá var starfsdögum leikskóla í bænum fækkað og teknar upp heimgreiðslur til foreldra.

Stéttarfélög hafa meðal annars gagnrýnt breytingarnar og kallað þær afturför í jafnréttismálum sem gerir foreldrum erfiðara fyrir að stunda fulla vinnu.

Dijá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, blés á þá gagnrýni í viðtali í Bítinu á Bylgjunni þar sem hugmyndir hennar og tveggja flokkssystra hennar, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur og Hildar Björnsdóttur, um fjölskyldu- og leikskólamál voru til umræðu.

Áslaug Arna nefndi þar að sveitarstjórnir þyrftu að þora að ráðast í kerfisbreytingar í leikskólunum og að það hefðu sjálfstæðismenn í Kópavogi gert. Ráðist hefði verið á þær breytingar eins og þær væru árás á jafnrétti þrátt fyrir að í ljós hefði komið að þær skiluðu betri þjónustu.

„Það er alveg lygilegt að hlusta á konur sem segjast tala fyrir réttindum kvenna taka til máls og gagnrýna kerfisbreytingar sem eru sannarlega að gagnast foreldrum og ekki síst mæðrum sem hafa verið að bera þyngstu byrðarnar í þessum efnum,“ tók Diljá Mist undir.

„Hvar voru þessar konur að gagnrýna kerfið eða stöðuna til dæmis í Reykjavík þegar við sjáum konur festar þar heima og komast ekki aftur inn á vinnumarkaðinn? Hvar eru þessar konur að berjast fyrir réttindum þá? Manni finnst þetta ótrúlegur tvískinningur.“

Eins og að auglýsa lágvöruverðsverslun með tómar hillur

Sjálfstæðiskonurnar þrjár voru sammála um að Reykjavíkurborg væri stærsta vandamálið í leikskólamálum. Þar hefði leikskólabörnum fækkað á síðustu tíu árum en einnig daggæsluplássum. 

Hildur, oddviti sjálfstæðismanna í borginni, sagði að lengstu biðlistarnir eftir leikskólaplássi væru í Reykjavík og meðalaldur barna við upphaf leikskólagöngu hæstur.

„Þetta bara lýsir ákveðnu andvaraleysi og áhugaleysi hjá þeim meiruhlutum sem hafa verið við völd síðustu ár á þessum málaflokki,“ sagði hún.

Áslaug Arna sagði að áhersla borgarstjórnar hefði verið á allt annað en fjölskyldur og börn. Á sama tíma og engin leikskólapláss séu til staðar í borginni stæri borgaryfirvöld sig af því að kostnaður við hvert pláss ´se lægstur í Reykjavík.

„Ég þreytist ekki á að segja að þetta er eins og að auglýsa lægstu lágvöruverslunina en það er ekkert í hillunum,“ sagði ráðherrann.


Tengdar fréttir

Kópavogsmódelið er ógn við jafnrétti

Leikskólamál í Kópavogi hafa verið til umfjöllunar vegna mjög umdeildra grundvallabreytinga á leikskólakerfinu sem tóku gildi á síðasta ári. Í meginatriðum fólust breytingarnar, sem Kópavogsbær kallar „Börnin í fyrsta sætið“, í að 6 tíma leikskóladvöl er gjaldfrjáls en gjöld voru hækkuð umtalsvert á lengri dvöl. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×