Lífið

Lítill bróðir mættur: „Fullkominn, stór og sterkur“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Jóhanna Helga og Geir Ulrich eignuðust strák 20. september
Jóhanna Helga og Geir Ulrich eignuðust strák 20. september Instagram @johannahelga9

Útvarpskonan og áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir eignaðist hraustan og heilbrigðan strák 20. september síðastliðinn. Hún og Geir Ulrich kærasti hennar eru í skýjunum og hlakka til að kynnast sem fjölskylda.

Jóhanna birti færslu á Instagram hjá sér um helgina þar sem hún skrifar: 

„Litli bróðir er mættur. Fullkominn, stór og sterkur - fæddur á slaginu kl 15:00 þann 20.09. Hlökkum til að kynnast sem fjölskylda næstu daga og vikur.“

Fyrir eiga Jóhanna og Geir dótturina Tinnu Maríu sem hefur beðið spennt eftir hlutverki sínu sem stór systir. 

Jóhanna og Geir hafa verið par í rúm 6 ár og ástin blómstrar hjá þeim en þau eru sömuleiðis bestu vinir. Í viðtali við Vísi í byrjun árs sagði Jóhanna:

„Geiri hvetur mig í orðum og dóttir mín, Tinna María, hvetur mig til að vera besta útgáfan af sjálfri mér. Ég hef svolítið lært það síðustu ár að sækja það sem mig langar til að gera. Að prófa að sækjast eftir því og ef ég fæ nei þá er það bara svoleiðis.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×