Fótbolti

Liverpool spilar á Rey Cup

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Síminn Rey Cup fer fram í fimmtánda sinn í sumar og hefur enska stórliðið Liverpool boðað komu sína.

Liverpool mun taka þátt í 3. flokki kvenna en á mótinu keppa 90 lið í 3. flokki karla og kvenna, þar af sextán erlend.

Sólmundur Már Jónsson, mótsstjóri, segir að áhugi erlendra liða á mótinu sé mikill en nú þegar hafi Norwich staðfest þátttöku sína fjórða árið í röð, sem sé mikill gæðastimpill fyrir mótið.

Frekari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess en rætt var við Sólmund Má í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×