Viðskipti erlent

Lækkanir á mörkuðum víða um heim

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Hlutabréf lækkuðu um allan heim á fyrsta degi viðskipta á árinu í dag. Útlit er fyrir að draga muni úr hagvexti í Kína og kom það söluskriðu af stað.

Lækkunina í gær má rekja til minni framleiðslu, en gert var ráð fyrir í Kína. Greinendur segja tölurnar til marks um að hægja sé á öðru stærsta hagkerfi heims. Það leiddi til mikils offramboðs á mörkuðum, þar sem fjölmargir reyndu að selja hlutabréf sín.

Kauphöllum í Kína var lokað vegna lækkunarinnar, sem leiddi til mikils taps í Evrópu og í Asíu. 

Um miðjan dag í hafði DOW vísitalan lækkað um 467 stig og var útlit fyrir einhvern versta dag hennar frá 1932, en hún rétti úr kútunum undir lok dags. Meðal annars vegna vegna deilna Sádi-Arabíu og Íran sem leiddi til hækkunar á olíuverði.

Sérfræðingar í Kína búast við frekari vandræðum þegar markaði opna aftur, en Kína kaupir gífurlegt magn af hráefnum og orku frá öðrum ríkjum. Þá hafa framleiðendur bundið miklar vonir við sífellt stækkandi miðstétt Kína, en þær vonir eru bundnar við áframhaldandi efnahagsvöxt þar í landi.

Hér heima hækkaði úrvalsvísitalan þó um tæpt prósentustig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×