Viðskipti erlent

Breytinga að vænta hjá Twitter

Samúel Karl Ólason skrifar
Breytingarnar eru sagðar ganga undir nafninu: Beyond 140.
Breytingarnar eru sagðar ganga undir nafninu: Beyond 140. Vísir/Getty
Útlit er fyrir að tístin muni lengjast nokkuð á næstu mánuðum. Fregnir hafa borist af því í dag að Twitter vinni nú að því að gera notendum kleift að birta færslur sem verði allt að tíu þúsund stafir að lengd. Hingað til hefur takmarkið verið bundið við 140 stafi.

Breytingarnar eru sagðar ganga undir nafninu: Beyond 140.

Samkvæmt tæknimiðlinum Re/code stendur til að framkvæma breytinguna fyrir lok fyrsta ársfjórðungs en það hefur þó ekki verið ákveðið fyrir fullt og allt.

Samkvæmt fregnunum virkar breytingin á þann veg að notendur sjái eingöngu hina venjulegu 140 stafi, en standi til boða að smella á tístið til að sjá meira. Mun meira.

Samkvæmt frétt Forbes hafa fjárfestar lengi farið fram á að breytingar sem þessar, en fyrirtækið hefur um áraraðir átt erfitt með tekjuöflun. Þar að auki hefur fyrirtækinu ekki tekist að laða að nægilega marga notendur. Nú eru virkir notendur Twitter um 370 milljónir á mánuði en hlutabréf fyrirtækisins hafa fallið í verði um 40 prósent frá sama tíma í fyrra.

Uppfært: 23:10

Jack Dorsey, framkvæmdastjóri Twitter, tísti nú í kvöld mynd af 1.325 stafa texta þar sem hann ýjar að því að breytinga sé að vænta. Hann tjáir sig ekki beint um fréttir dagsins, en gerir öllum ljóst að Twitter verði ekki bundið við 140 stafi að eilífu. Tístið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×