Viðskipti erlent

Kínverjar afnema reglu um lokun kauphalla

ingvar haraldsson skrifar
Kínverskir fjárfestar hafa margir áhyggjur af kínversku efnahagslífi.
Kínverskir fjárfestar hafa margir áhyggjur af kínversku efnahagslífi. vísir/epa
Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að falla frá reglu um sjálfvirka lokun kauphalla falli hlutabréfaverð um 7 prósent. BBC greinir frá.

Kínverskir hlutabréfamarkaðir hafa tvívegis lokað í vikunni eftir að reglan varð virk, nú síðast í nótt innan við hálftíma eftir opnun markaða.

Í tilkynningu frá kínversku verðbréfaeftirlitsnefndinni kom fram að eins og sakir standi væru ókostir við regluna fleiri en kostirnir. Því hafi verið tekin ákvörðun um að afnema regluna til að viðhalda stöðugleika á markaði.

Hlutabréf um allan heim hafa fallið í dag eftir lokun kauphalla í Kína í nótt.


Tengdar fréttir

Lækkanir í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa allra skráðra félaga í Kauphöllinni, nema Eikar, hafa lækkað í morgun.

Kauphöllum í Kína lokað aftur

Kauphöllum í Kína var aftur lokað í nótt, annan daginn í þessari viku, eftir meira en sjö prósent lækkanir í upphafi dags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×