Viðskipti erlent

Hlutabréf Twitter hríðfalla á ný

Sæunn Gísladóttir skrifar
Jack Dorsey, t.v. ásamt meðstofnendum Twitter þegar fyrirtækið fór á markað árið 2013.
Jack Dorsey, t.v. ásamt meðstofnendum Twitter þegar fyrirtækið fór á markað árið 2013. Vísir/EPA
Hlutabréf Twitter féllu um 13% í viðskiptum eftir að New York Kauphöllin lokaði í gær eftir að tilkynnt var að þriðji ársfjórðungur hefði verið undir væntingum.

Mánaðarlegir notendur voru 320 milljónir, sem var fjórum milljónum minna en vonir  voru um. Tekjur námu 560 milljónum dollara, jafnvirði 72 milljörðum íslenskra króna sem var yfir væntingum. Hins vegar hafði Twitter tilkynnt áður um að tekjur yrðu hærri á þessum fjórðungi. Fyrirtækið tapaði 132 milljónum dollara, eða tæplega 17 milljörðum króna.

Twitter hefur lækkað afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung. Búist er við tekjum á milli 90 og 91 milljarði íslenskra króna, sem er talsvert undir 95 milljarða króna spá sérfræðinga.

Þetta er ekki góð byrjun hjá nýja forstjóranum Jack Dorse, sem skipaður var í september. Twitter á enn í miklum vandræðum við að ná sér í nýja notendur. Twitter bætti einungis við sig fjórum milljónum notenda á þriðja ársfjórðungi. Til samanburðar bætti Facebook við sig 49 milljónum notenda á mánuði á öðrum ársfjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×