Viðskipti erlent

Auðkýfingur ætlar að gefa 99 prósent eigna sinna í þróunaraðstoð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Manoj Bargava segist ekki þurfa peningana sem hann hefur unnið sér inn.
Manoj Bargava segist ekki þurfa peningana sem hann hefur unnið sér inn. mynd/youtube
Hinn indversk-bandaríski Manoj Bhargava er ekki aðeins pirrandi maðurinn sem birtist í stuttum auglýsingum á undan Youtube myndböndum. Hann skapaði drykkinn 5-hour energy drink og hefur á stuttum tíma eignast gífurlegan auð. Þennan auð hyggst hann nú til að bæta stöðu heimsins.

Á undanförnum fimm árum hefur hann gefið tæpar fimmtíu milljónir dollara til góðgerðamála en eigur hans eru taldar um fjórir milljarðar dollara eða tæpir 500 milljarðar íslenskra króna. Bhargava telur að hann þurfi ekki nema tæplega prósent af því til að komast af og hefur ákveðið að nýta afganginn til að finna tækninýjungar á sviði orku-, heilbrigðis- og náttúrumála.

„Ef að þú átt peninga þá er það skylda þín til að gefa til þeirra sem eiga hann ekki,“ segir Bhargava. „Þú verður að breyta lífi þeirra sem minna mega sín og ekki aðeins tala um það.“

Meðal þess sem verkfræðingar hans hafa skapað eru síur sem geta búið til drykkjarvatn úr sjó á ódýrari og orkuminni hátt en hægt hefur verið hingað til. Einnig hafa þeir skapað lítinn rafal sem er knúinn áfram af þér sjálfum. Hjólir þú í klukkustund áttu orku sem dugir í 24 klukkustundir.

Hægt er að sjá stiklu úr um Bhargava hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×