Innlent

Veðurstofan varar við úrkomu og vatnavöxtum

Atli Ísleifsson skrifar
Lægð gengur upp að landinu á laugardagsmorgun.
Lægð gengur upp að landinu á laugardagsmorgun. Vísir/Stefán
Veðurstofan hefur varað við úrkomu og vatnavöxtum um helgina en lægð gengur upp að landinu á laugardagsmorgun.

Verulegri úrkomu er spáð víða á sunnan- og vestanverðu landinu fram á aðfaranótt sunnudags.

„Mest verður rigningin á Suðausturlandi og má búast við verulegum vatnavöxtum sunnan jökla, á láglendi jafnt sem hálendi. Við slíkar aðstæður gæti skriðuhætta aukist. Ferðafólk er hvatt til að gæta ítrustu varúðar við vatnsföll.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×