Fótbolti

Enrique vill ekki kenna Ter Stegen um jöfnunarmarkið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
ter-Stegen.
ter-Stegen. Vísir/getty
Knattspyrnustjóri Barcelona, Luis Enrique, kom markmanni sínum, Marc-André ter Stegen til varnar eftir jöfnunarmark Roma í 1-1 jafntefli liðanna í gær en markið kom með langskoti frá miðju vallarins.

Alessandro Florenzi skoraði mark ársins í leik liðanna í gær þegar hann ákvað að láta vaða nokkrum metrum fyrir innan vallarhelming Barcelona en skotið fór yfir ter-Stegen, í stöngina og inn. Hreint út sagt ótrúlegt mark.

Jöfnunarmark Florenzi tryggði Roma eitt stig í leiknum eftir að Luis Suárez kom Barcelona yfir fyrr í leiknum.

Sagði Enrique að sökin lægi hjá sér en hann vill hafa markverði sína framarlega.

„Florenzi er góður leikmaður en hann var heppinn. Hann tók áhættu og skoraði sem var vel gert en sökin liggur ekki hjá leikmönnunum mínum heldur hjá mér. Við segjum markmönnunum okkar að spila svona framarlega og ég er viss um að enginn muni leika þetta eftir.“

Er þetta ekki í fyrsta sinn sem leikmaður skorar nálægt miðjunni gegn ter-Stegen en miðvörðurinn Mikel San José gerði það sama í leik Barcelona og Athletic Bilbao í spænska ofurbikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×