Viðskipti erlent

Viagra fyrir konur á markað fyrir árslok

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ein lítil pilla af Addyi.
Ein lítil pilla af Addyi. vísir/ap
Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna hefur gefið grænt ljós á framleiðslu lyfs sem eykur kynhvöt kvenna. Niðurstaða þess efnis var kynnt í kvöld.

Addyi er orð sem fólk ætti mögulega að leggja á minnið en lyfið hefur hlotið það nafn. Því hefur verið lýst sem viagra fyrir kvenmenn.

Lyfið inniheldur hormónið flibanserin og er ætlað konum sem eru að nálgast breytingaskeiðið og hafa tapað kynhvöt sinni. Framleiðendur lyfsins voru í skýjunum með niðurstöðu stofnunarinnar og segja hana opna ýmsar dyr fyrir konum. Gangi áætlanir fyrirtækisins upp verður Addyi komið á markað í síðari hluta október.

Lyfjastofnunin hafði áður neitað að samþykkja lyfið í tvígang á síðustu fimm árum. Niðurstaðan varð önnur nú í kjölfar ráðgefandi álits sérfræðinefndar um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×