Viðskipti erlent

Forstjóri Toshiba hættur vegna bókhaldssvika

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hisao Tanaka, fyrrverandi forstjóri Toshiba, hafði starfað hjá fyrirtækinu frá því snemma á 8. áratugnum.
Hisao Tanaka, fyrrverandi forstjóri Toshiba, hafði starfað hjá fyrirtækinu frá því snemma á 8. áratugnum. vísir/epa
Forstjóri japanska tölvuframleiðandans, Hisao Tanaka, hefur látið af störfum en hann gerir það í kjölfar þess að upp komst um bókhaldssvik fyrirtækisins. Málið þykir mikið hneykli og álitshnekkir fyrir Toshiba.

Í gær skilaði óháð nefnd skýrslu um bókhald Toshiba en í henni kom fram að hagnaður fyrirtækisins hafi verið ofmetinn um alls rúman milljarð bandaríkjadala síðastliðin sex ár.

Toshiba bað hluthafa afsökunar á svikunum í yfirlýsingu sem fyrirtækið hefur sent frá sér. Auk forstjórans, Tanaka, hætti Norio Sasaki, aðstoðarstjórnarformaður fyrirtækisins. Stjórnarformaðurinn, Masashi Muromachi, tekur við forstjórastöðunni.

Tanaka og Sasaki hófu báðir störf hjá Toshiba snemma á 8. áratugnum. Sasaki var forstjóri á árunum 2009 til 2013, áður en hann settist í stjórn fyrirtækisins, svo hann var í forsvari meirihluta þess tímabils sem svikin ná til.

Fjármálaráðherra Japans, Taro Aso, sagði að hneyksli Toshiba myndi grafa undan trausti og trú á japönskum fyrirtækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×