Viðskipti erlent

Erfiðasta áætlun Evrópusambandsins til þessa

Heimir Már Pétursson skrifar
Evrópusambandið og Seðlabanki Evrópu hafa þegar gripið til aðgerða til að tryggja ríkissjóði og bönkum í Grikklandi fjármagn þar til björgunarpakki sem gríska þingið samþykkti í nótt kemur til framkvæmda. Fjármálaráðherra Finnlands segir vanda Grikkja þann erfiðasta sem Evrópusambandið og evrusvæðið hafi staðið frammi fyrir.

Gríska þingið samþykkti í nótt nauðsynleg frumvörp vegna lánapakka Grikklands með 229 atkvæðum af þrjúhundruð. Sextíu og fjórir þingmenn, þar af 38 þingmenn af 149 í Syriza flokki Alexis Tsipras forsætisráðherra, greiddu atkvæði gegn frumvörpunum og sex sátu hjá. En stór hluti þingmanna stjórnarandstöðuflokkanna, að frátöldum kommúnistum og þjóðernisöfgasinnum, greiddi atkvæði með frumvörpunum.

Stamatis Skabardonis, félagi í Syriza, óttast ekki að flokkurinn klofni vegna þessa.

„Við munum öll standa saman í baráttunni við þessar aðstæður þar sem við höfum snöru um hálsinn. Þetta var mjög erfið en hughrökk ákvörðun. Fólk mun fylkjast út á göturnar til að sjá til þess að þessi vinstri stjórn falli ekki,“ sagði Skabardonis við fréttamenn að lokinni atkvæðagreiðslunni.

Bankar voru enn lokaðir í Grikklandi í dag en bankastjóri Seðlabanka Evrópu tilkynnti í dag að Grikkir fengju nú þegar 900 milljónir evra til að lifa af næstu viku.

Þá fá Grikkir sjö milljarða evra lán til að brúa bilið þar til heildaraðgerðir upp á 89 milljarða verða komnar til framkvæmda. En þeir þurfa meðal annars að standa skil á 3,5 milljörðum til Evrópska seðlabankans á mánudag.

Hópur Þjóðverja mótmælti fyrir utan höfuðstöðvar bankans í Frankfurt í Þýskalandi í dag og var bankinn sakaður um allt of mikla hörku í garð Grikkja.  Nær væri að fresta gjalddögum bankans en neyða þá til nýrra lána til að standa í skilum.

Samþykkja þurfti aðgerðirnar á nokkrum þjóðþingum evruríkjanna, m.a. í Finnlandi en finnska þingið samþykkti tillögurnar í dag. Finnar hafa verið meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Grikki hvað mest fyrir slæma efnahagsstjórn og að standa ekki við gefin loforð og hefur Alexander Stubb, fjármálaráðherra Finnlands, farið framarlega í gagnrýninni.

„Vegna þess að þetta er sennilega erfiðasta ferli sem við höfum upplifað í nokkurri áætlun sem samkomulag hefur náðst um áður á vettvangi Evrópusambandsins. En við verðum að hafa í huga að okkur tókst ætlunarverk okkar í áætlunni vegna Írlands, Portúgals og upp að vissu marki í áætlun Spánar og Kýpur. Ef þessum ströngu skilyrðum verður fylgt eftir í Grikklandi munum við komast upp úr þessum pyttum líka,“ segir Stubb. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×