Fótbolti

Strákarnir hækka sig um eitt sæti á FIFA-listanum

Þjálfarar landsliðsins, Lars Lagerbåck og Heimir Hallgrímsson.
Þjálfarar landsliðsins, Lars Lagerbåck og Heimir Hallgrímsson. vísir/vilhelm
Íslenska karlalandsliðið er sem fyrr í fínum málum á heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA.

Strákarnir hækka sig um eitt sæti á nýja listanum og eru nú í 37. sæti.

Danir eru efstir af Norðurlandaþjóðunum í 29. sæti en Ísland er tveim sætum á undan Svíum.

Næstu andstæðingar Íslands í undankeppni EM, Tékkar, eru í 16. sætinu. Þjóðverjar eru á toppnum sem fyrr en Belgía nær að ryðjast upp í annað sætið á kostnað Argentína.

Listinn í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×