Viðskipti erlent

Raunverulegir peningar settir í ný Monopoly spil

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Framleiðendur borðspilsins Monopoly fagna 80 ára afmæli spilsins með því að skipta út gerviseðlum, fyrir raunverulegar evrur. Það hefur verið gert í 80 spilum og einn heppinn kaupandi gæti fundið rúmar þrjár milljónir króna í spilinu sínu.

Fyrirtækið Hasbro, sem framleiðir spilið, skipti út seðlum í 80 spilum af um 30 þúsund. Í flestum spilunum er einungis nokkrum seðlum skipt út fyrir raunverulega peninga og kom hugmyndin upprunalega frá spilurunum sjálfum. Þetta kemur fram á vef Independent.

Í einu spilinu hefur öllum seðlunum verið skipt út fyrir raunverulegar evrur. Í heildina samsvarar það 20.580 evrum eða rúmum þremur milljónum króna.

Spilunum var pakkað með mikilli leynd og reynt var að ganga úr skugga um að kassarnir litu alveg eins út og venjulega. Framkvæmdastjóri Hasbro segir Guardian að þrátt fyrir það hafi smávægileg bunga myndast á kassanum þar sem öllum peningunum var skipt út. Þá er þyngdarmunurinn nánast enginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×