Viðskipti erlent

Fyrsta kínverska flugvélin

Finnur Thorlacius skrifar
Comac ARJ21-700 hefur sig til flugs.
Comac ARJ21-700 hefur sig til flugs.
Fyrsta flugvélin sem hönnuð er og smíðuð í Kína var kynnt þarlendis síðasta þriðjudag. Vélin ber heitið Comac ARJ21-700 og stendur Comac fyrir Commercial Aircraft Corporation of China.

Hún er ætluð til innanlandsflugs í Kína og getur tekið 70 til 90 farþega og hefur 3.700 kílómetra flugþol. Það tók 12 ár að þróa vélina og síðustu 6 ár hafa farið í að reynslufljúga henni. Þessi fyrsta vél verður í þjónustu kínverska flugfélagsins Chengdu Airlines.

Vélin er afar lík McDonnell Douglas MD-10 og er þar engin tilviljun á ferð, því verksmiðjan sem vélin er smíðuð í hafði áður sett saman slíkar vélar fyrir McDonnell Douglas til sölu í Kína. Comac fyrirtækið kínverska er einnig að þróa smíði stærri flugvélar sem taka á 158 manns í sæti og stendur til að bjóða þá vél til sölu árið 2018.

Á áttunda áratug síðustu aldar hófu kínverjar smíði eigin flugvélar, vélar sem fékk nafnið Shanghai Y-10, en hætt var við smíði hennar þó svo hún hafi farið í ein 130 tilraunaflug á árunum 1980 til 1984. Þegar vélin var tilbúin til fjöldaframleiðslu reyndist enginn markaður fyrir hana þar sem hún stóð öðrum vélum, sem kínversk flugfélög höfðu í sinni þjónustu, engan veginn snúning og þróun hennar því úrelt. Varð smíði hennar því sjálfhætt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×