Eðlileg ávöxtunarkrafa gagnvart „Íslandi hf.“? Skjóðan skrifar 12. nóvember 2014 13:00 Hér eru gjaldeyrishöft, sem takmarka erlenda fjárfestingarkosti og hindra aðgang að erlendri fjármögnun.
Á morgunverðarfundi Arion banka á dögunum kom fram að skuldsetning atvinnufyrirtækja hefur dregist hratt saman og eiginfjárhlutfallið nálgast 40 prósent og hefur ekki verið hærra í áratug. Að mati Arion banka er langstærstur hluti íslenskra fyrirtækja nú með það rúma fjárhagsstöðu að hann gæti vandalaust ráðist í fjárfestingar. Samkvæmt úttekt greiningardeildar Arion banka hefur efnahagsreikningur fyrirtækja dregist saman m.a. vegna þess að fjárfestingar hafa verið minni en afskriftir, aðstæður hér á landi séu til fyrirmyndar, aðeins hafi tekið fimm ár að vinda ofan af of skuldsettum einkageira, og „Ísland hf.“ sé við bestu heilsu. En er þetta alls kostar rétt? Eru rekstraraðstæður svona góðar á Íslandi? Hér eru gjaldeyrishöft, sem takmarka erlenda fjárfestingarkosti og hindra aðgang að erlendri fjármögnun. Ef fasteignaverð og þróun verðlags á opinberri þjónustu er tekið út fyrir sviga er verðhjöðnun hér á landi um þessar mundir og verðhjöðnun er talin slík ógnun við efnahagsstöðugleika að stýrivextir eru víðast hvar komnir niður undir núllið í nágrannalöndum okkar. Sænski seðlabankinn lækkaði t.d. stýrivexti niður í 0 prósent til að reyna að afstýra verðhjöðnun þar í landi. Greiningardeild Arion banka telur vexti hér á landi vera lága út frá sögulegu samhengi þrátt fyrir að raunvextir séu nú hærri en verið hefur um árabil, jafnvel þrátt fyrir nýlega vaxtalækkun Seðlabanka Íslands. Fram kom á fundinum að ein ástæða minnkandi skuldsetningar íslenskra fyrirtækja er sú að lítill sem enginn munur sé nú á ávöxtunarkröfu eigin fjár og skulda. Er það eðlilegt ástand í landi sem lokað er í gjaldeyrishöftum, þjáist af lítilli opinberri fjárfestingu og horfir fram á mögulega verðhjöðnun? Eigið fé er áhættusamasti hluti fjármögnunar fyrirtækja og mætir afgangi við uppgjör t.d. þrotabúa. Fyrst eru skuldirnar greiddar og svo eigið fé ef einhver er afgangurinn. Þess vegna er gerð mun ríkari ávöxtunarkrafa til eigin fjár en skulda. Þegar munur á ávöxtunarkröfu milli skulda og eigin fjár hverfur bendir það til að verðlagning annars hvors sé röng; eigið fé selt of ódýrt eða skuldir of dýru verði. Í ljósi þess að fjárfesting í íslensku atvinnulífi er hverfandi og fyrirtæki kjósa fremur eigið fé en skuldsetningu þegar ráðist er í fjárfestingu er nokkuð ljóst að það eru skuldirnar, sem eiga að skila allt of mikilli ávöxtun á Íslandi. Allt of háir vextir halda aftur af fjárfestingu, verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu – halda aftur af lífskjörum Íslendinga í bráð og lengd.Skjóðan er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Skjóðan Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Sjá meira