Viðskipti erlent

Segir fjármálin vera að lagast

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Mariano Rajoy forsætisráðherra segir Spánverja vera að rétta úr kútnum.
Mariano Rajoy forsætisráðherra segir Spánverja vera að rétta úr kútnum. fréttablaðið/AP
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánverja, segir í spænska fréttablaðinu El País að nú sjái fyrir enda kreppunnar sem hefur leikið landann grátt undanfarin ár.

Vitnaði hann í spænsku hagstofuna, sem birti um mánaðamótin hagtölur sem sýna að landsframleiðslan hafi aukist um 0,6 prósent síðustu þrjá mánuði.

Slík aukning hefur ekki sést frá árinu 2007. Þar að auki eru 192 þúsundum fleiri starfandi nú miðað við sama tíma í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×