Viðskipti erlent

Evrópusambandið ræðir viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum

Randver Kári Randversson skrifar
Mögulegar hertar viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum verða ræddar á vettvangi Evrópusambandsins á morgun.
Mögulegar hertar viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum verða ræddar á vettvangi Evrópusambandsins á morgun. Visir/Stefán
Auknar viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum er meðal þess sem leiðtogar Evrópusambandsins munu ræða á fundi í Brussel á morgun. Reuters greinir frá þessu.

Fari svo að framkvæmd forsetakosninganna í Úkraínu verði talin aðfinnsluverð vegna afskipta Rússa, mun Evrópusambandið íhuga að herða refsiaðgerðir sínar gagnvart Rússum.

Ekki hefur verið ákveðið hversu langt þvingunaraðgerðir myndu ganga. Vægustu tillögurnar fela í sér innflutningshöft á rússneskar munaðarvörur á borð við demanta, góðmálma, loðfeldi, vodka og kavíar, og útflutningshöft til Rússlands á vörur eins og áburð, efnablöndur, dekk og farartæki.

Þær tillögur sem lengst ganga gera ráð fyrir þvingunum á fjármagnsmörkuðum, bann á nýjar fjárfestingar í Rússlandi, og jafnvel algjört bann á innflutning á gasi og olíuvörum frá Rússlandi.

Óvíst er þó hvort ríki Evrópusambandsins nái samkomulagi um að frekari viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum. Ríki á borð við Ítalíu, Þýskaland og Grikkland, sem hafa sterk viðskiptatengsl við Rússland, óttast þær neikvæðu afleiðingar sem það gæti haft á sinn efnahag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×