Viðskipti erlent

280 milljarða sekt fyrir að aðstoða Bandaríkjamenn að stinga pening í skattaskjól

Búist er við að svissneski bankinn Credit Suissi og franski bankinn BNP Paribas viðurkenni lögbrot vegna fjármálamisferlis á næstu drögum. Í kjölfarið  samþykki þeir að greiða sektir upp á samtals 6 milljarða dollara, jafnvirði 672 milljarða króna, en bankarnir hafa verið í viðræðum við bandarísk yfirvöld. Frá þessu er greint í Financial Times.

Lloyd Blankfein, forstjóri Goldman Sachs, hefur varað við því að bankarnir viðurkenni lögbrot vegna misferlis starfsmanna sinna þá geti það haft ófyrirséðar afleiðingar á fjármálamarkaði. Hann segir að Goldman Sachs muni samt halda áfram viðskiptum við báða banka.

Credit Suisse mun greiða nálægt 2,5 milljörðum dollara í sekt, jafnvirði 280 milljarða króna, fyrir að aðstoða Bandaríkjamenn við að svíkja undan skatti með því að skjóta peningum undan í skattaskjól.

BNP Paribas er undir þrýstingi um að greiða 3,5 milljarða dollara í sekt fyrir að virða ekki viðskiptabönn bandarískra stjórnvalda gagnvart Íran og fyrir peningaþvætti en bankinn þvættaði ávinning af umfangsmiklum fíkniefnaviðskiptum.

Sektin á franska bankann, verði hún greidd, er jafnvirði tæplega 400 milljarða króna en þetta mun vera hæsta sekt sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur sóst eftir í sakamáli í sögunni. Viðræður hafa staðið yfir um sektirnar síðustu vikur og hefur fjármálaráðherra Frakklands meðal annars blandað sér í málið.

Bandarísk stjórnvöld hafa skotheldar sannanir gegn báðum þessum bönkum.

Sérfræðingar á fjármálamarkaði óttast að BNP Paribas ráði ekki við sektina og það tjón sem fylgi löskuðu orðspori, viðurkenni hann lögbrot. Hafa menn rifjað upp að endurskoðunarrisinn Arthur Andersen hafi farið á hausinn eftir að stjórnendur fyrirtækisins voru ákærðir fyrir að hindra framgang réttvísinnar þegar ENRON var til rannsóknar. En fyrirtækið hafði áður gefið heilbrigðisvottorð á falsað bókhald ENRON sem kaf kolranga mynd af fjárhagsstöðu fyrirtækisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×