Viðskipti erlent

„Þögul“ plata fjarlægð af Spotify

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Spotify hafði húmor fyrir uppátækinu en fjarlægði engu að síður plötuna af vef sínum.
Spotify hafði húmor fyrir uppátækinu en fjarlægði engu að síður plötuna af vef sínum. vísir/getty
Tónlistarveitan Spotify hefur fjarlægt plötu bandarísku hljómsveitarinnar Vulfpeck af vefsíðunni en hún innihélt aðeins þögn.

Hljómsveitin aflaði 20 þúsund Bandaríkjadala (um 2,2 milljónum króna) á plötunni Sleepify en liðsmenn sveitarinnar hvöttu aðdáendur sína til að streyma lögum plötunnar á nóttunni á meðan þeir svæfu.

Spotify greiðir listamönnum litla upphæð fyrir hverja spilun lags sem stendur yfir í þrjátíu sekúndur eða lengur. Hin þöglu lög plötunnar voru nákvæmlega þrjátíu sekúndna löng og var tilgangurinn með uppátækinu sá að fjármagna fyrirhugaða tónleikaferð sveitarinnar.

Hljómborðsleikari hennar segist hafa fengið bréf frá Spotify þar sem gjörningurinn var sagður fyndinn og snjall en að hann bryti engu að síður gegn notendaskilmálum síðunnar.

Hyggst hljómsveitin nú heimsækja þá staði sem streymdu lögunum mest og verður aðgangseyrir enginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×