Viðskipti erlent

Yfirvöld í Sádi-Arabíu skoða löggjöf fyrir Youtube

Samúel Karl Ólason skrifar
Kona í Sádi-Arabíu rennir yfir Twittersíðu sína.
Kona í Sádi-Arabíu rennir yfir Twittersíðu sína. Vísir/AFP
Yfirvöld í Sádi-Arabíu rannsaka nú hvort mögulegt sé að stjórna Youtube-myndböndum sem framleidd eru í landinu með reglugerðum. Meðal annars er verið að skoða möguleikann á því að fólk þurfi leyfi frá stjórnvöldum til að setja inn myndbönd.

AP fréttaveitan hefur eftir Riyad Najm, að markmið rannsóknarinnar sé að ná tökum á þeirri fjölgun sem hefur orðið á myndböndum í landinu svo þau endurspegli og virði múslímsk viðhorf landsins.

„Markmiðið er ekki að setja pressu á þá, heldur að auka gæði myndbanda þeirra. Þó verða þeir að vera meðvitaðir um þau takmörk sem samfélagið setur þeim og að fara ekki út fyrir þau.“

Að minnsta tólf íbúar landsins hafa á undanförnum vikum birt myndbönd á Youtube, þar sem þeir gagnrýna konungsfjölskylduna og fara fram á breytingar. Þrír þeirra hafa verið handteknir auk annarra sem tengdust myndböndunum.

Þá var íþróttafréttamaður dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar og til að hljóta 50 svipuhögg fyrir skrif sín á Twitter um tvo eigendur fótboltafélaga. Hann var einnig bannaður á Twitter í þrjá mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×