Viðskipti erlent

Microsoft ætlar að henda Nokia-nafninu

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Að Stephen Elop sögn stendur nú yfir vinna að finna nýtt nafn á snjallsíma og önnur snjalltæki fyrirtækisins.
Að Stephen Elop sögn stendur nú yfir vinna að finna nýtt nafn á snjallsíma og önnur snjalltæki fyrirtækisins. VÍSIR/AFP
Microsoft mun ekki nota vörumerkið Nokia á snjallsíma sína í framtíðinni. Þetta segir, Stephen Elop, fyrrverandi framkvæmdastjóri finnska fyrirtækisins Nokia.

Hann hóf störf sem yfirmaður snjalltækjahóps Microsoft í gær og tók þátt í samræðum á vef Nokia þar sem áhugasamir gátu sent inn spurningar.

Microsoft keypti farsímahluta fyrritækisins Nokia í september síðasta haust fyrir um 860 milljarða íslenskra króna. Kaup Microsoft á Nokia þykir marka lok merkilegs kafla í sögu Nokia en um leið nýtt upphaf Nokia undir væng tölvurisans.

Að Elop sögn stendur nú yfir vinna að finna nýtt nafn á snjallsíma og önnur snjalltæki fyrirtækisins. Vinnan hófst í síðustu viku þegar Microsoft eignaðist farsímahluta Nokia lauk endanlega.

Elop vildi þó ekki greina nánar frá vinnunni að nýju nafni fyrir snjallsíma. Það gengi að minnsta kosti ekki að sameina nöfnin í til dæmis: Nokia Lumia 1020 with Windows Phone on the AT&T LTE network. „Allt of mörg orð,“ sagði Elop. 

Hér fyrir neðan má sjá fyrstu auglýsingu Nokia síma frá Microsoft en hún var birt fyrr í vikunni: 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×