Viðskipti erlent

Taka höndum saman um flugumferðarstjórn

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Upphalning á flugumferðarstjórn á að ýta undir vaxtarmöguleika í flugi í Kína.
Upphalning á flugumferðarstjórn á að ýta undir vaxtarmöguleika í flugi í Kína. Nordicphotos/AFP
Flugvélaframleiðandinn Airbus og Flugumferðarstjórn Kína hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf við að nútímavæða flugumferðarstjórn í Kína og innleiða nýjustu tækni við flugumferðarstjórn.

Samkvæmt tilkynningu Airbus verður áhersla lögð á að bæta flugumferð, auka bæði þol og skilvirkni, um leið og sjálfbærniviðmið séu höfð að leiðarljósi. Eins á að hjálpa til við að samstilla flugumferðarstjórn í Kína, bæði fyrir innan- og utanlandsumferð.

Airbus ProSky flugumferðarstjórnarfyrirtæki Airbus annast innleiðingu nýrrar tækni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×