Fótbolti

Eigum góða möguleika á að skora í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Ljubljana skrifar
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, segir mikilvægt að leikmenn endurtaki ekki mistökin sem þeir gerðu í æfingaleiknum gegn Rússlandi í síðasta mánuði. Ísland mætir Slóveníu ytra í undankeppni HM 2014 í kvöld.

„Það eru allir heilir og allir gátu verið með á æfingunni í dag," sagði Lars í samtali við Fréttablaðið í Ljubljana í gær. Hann á ekki von á að breyta miklu í byrjunarliði sínu fyrir leikinn í kvöld.

„Við vorum án nokkurra leikmanna gegn Rússlandi og því breytist það eitthvað en grunnhugmyndin er sú sama. Ég var ánægður með hvernig við vörðumst í þeim leik og tel reyndar að það sé það besta sem við höfum sýnt í heilum leik hingað til."

Lagerbäck segist hafa fengið einhverjar upplýsingar um lið Slóvena sem spilar sinn fyrsta mótsleik í kvöld undir stjórn nýs þjálfara, Srecko Katanec. „Við vitum að það eru einhver meiðslavandræði í liðinu en það breytir í raun ekki miklu fyrir okkur. Við munum mæta vel undirbúnir til leiks, hvernig sem þeir spila."

Verkefnið í kvöld verður erfitt enda Slóvenar með sterkt lið sem komst til að mynda þrívegis í úrslitakeppni stórmóts á tólf árum.

„Á útivelli skiptir mestu að verjast vel. Ef það tekst tel ég sigurlíkur okkar fínar enda eigum við góða möguleika á að skora miðað við þá leikmenn sem við erum með. Ég vil að liðið spili góða vörn en taki svo skynsamlegar ákvarðanir þegar það fær boltann. Við lærðum það vonandi af leiknum gegn Rússum." - esá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×