Fótbolti

Mark Söru dugði ekki til

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sara fagnar marki í leik með Malmö.
Sara fagnar marki í leik með Malmö. Mynd/Heimasíða LdB Malmö
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrir LdB Malmö í 3-1 tapi gegn Evrópumeisturum Wolfsburg í síðari leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í dag. Sænska liðið er úr leik.

Ljóst var að verkefni kvöldsins yrði erfitt enda tapaði Malmö heimaleiknum 2-1. Ekki vænkaðist hagur gestanna þegar Wolfsburg komst í 2-0 í fyrri hálfleik.

Sara Björk minnkaði muninn með marki á 71. mínútu. Þá var staðan samanlagt 4-2 og gestirnir því í leit að tveimur mörkum. Það voru hins vegar heimakonur sem tryggðu sér sigurinn og farseðilinn í átta liða úrslitin með marki undir lokin.

Auk Wolfsburgar tryggði Barcelona sér sæti í 8-liða úrslitum í kvöld. Tveir leikir standa yfir á Bretlandseyjum en hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu UEFA, sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×