Viðskipti erlent

Ferrari þénar mest á hvern seldan bíl

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ferrari að gera góða hluti.
Ferrari að gera góða hluti. nordicphotos/getty
Bílaframleiðandinn Ferrari fær mest fyrir hvern bíl sem fyrirtækið selur af öllum bílaframleiðendum í heiminum.

Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var við háskólann í Duisborg í Þýskalandi á dögunum.

Gríðarlegur munur er á tekjum fyrirtækja sem framleiða færri gæðabíla og þeirra sem fjöldaframleiða ökutæki.

Háskólinn í Þýskalandi rannsakaði fyrstu þrjá ársfjórðunga bílaframleiðenda og niðurstaðan var sú að Ferrari og Porsche þéna mest allra framleiðenda á hverjum seldum bíl.

Ferrari hefur framleitt 13.000 bíla það sem af er ársins 2013 en meðalverð þeirra er 194.227 evrur eða rúmlega 32 milljónir íslenskra króna.

Hagnaður fyrirtækisins er því tæplega fjórar milljónir íslenskra króna á hverjum seldum bíl.

Porsche hefur selt um 115.000 bíla en meðalverð á þeim er 90.600 evrur eða tæplega fimmtán milljónir íslenskra króna. Hagnaður fyrirtækisins á hverjum seldum bíl er því um 2,7 milljónir íslenskra króna.

Bílaframleiðendurnir BMW, Audi og Mercedes Benz þéna allir í kringum hálfa milljón íslenskra króna á hverjum bíl.

Toyota stendur best að vígi þeirra bílaframleiðenda sem fjöldaframleiða sína vöru en fyrirtækið þénar um 250.000 íslenskra króna á hverjum bíl sem fyrirtækið selur. Það er því himinn og haf á milli Toyota og Ferrari.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×