Fótbolti

Töskurnar fóru á undan

Kolbeinn Tumi Daðason í Osló skrifar
Sigurður Þórðarson (lengst til vinstri) fagnar hér með strákunum þegar Jóhann Berg Guðmundsson skoraði jöfnunarmarkið í Sviss.
Sigurður Þórðarson (lengst til vinstri) fagnar hér með strákunum þegar Jóhann Berg Guðmundsson skoraði jöfnunarmarkið í Sviss. Mynd/Valli
Sigurður Þórðarson, liðsstjóri karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, var mættur á Keflavíkurflugvöll klukkan sex í morgun með farangur liðsins.

Sigurði til aðstoðar voru Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, og Þorgrímur Þráinsson. „Dúllan“, eins og Sigurður er oft kallaður, var hinn hressasti og klár í slaginn fyrir Noreg.

Íslenska liðið æfir hér heima í dag en flýgur svo utan til Ósló klukkan 16 síðdegis. Liðið dvelur á hóteli í um þriggja kílómetra fjarlægð frá Ullevaal þar sem liðið æfir á morgun. Leikurinn fer fram á þriðjudagskvöldið klukkan 18 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×