Viðskipti erlent

Bygging Apple-„geimskipsins“ endanlega samþykkt

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Byggingin er kölluð Geimskipið, þar sem lögun þess minnir á geimskip úr vísindaskáldsögu.
Byggingin er kölluð Geimskipið, þar sem lögun þess minnir á geimskip úr vísindaskáldsögu.
Tölvurisinn Apple hefur birt ljósmyndir af líkani af nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins sem eru í byggingu. Steve Jobs, stofnandi Apple, kynnti byggingaráformin fyrir borgarráði Cupertino-borgar í Kaliforníu nokkrum mánuðum fyrir dauða sinn árið 2011.

Í gær var kosið endanlega um bygginguna og samþykkti borgarráðið hana eftir sex klukkustunda umræður. Höfuðstöðvarnar ganga undir nafninu Apple Campus 2, en byggingin er einnig kölluð Geimskipið, þar sem lögun þess minnir á geimskip úr vísindaskáldsögu.

Verkefnið er komið langt yfir kostnaðaráætlun og er áætlaður heildarkostnaður við bygginguna talinn verða rúmir sex hundruð milljarðar þegar upp er staðið.

Hin rúmlega 250 þúsund fermetra bygging mun hýsa skrifstofur Apple, fyrirlestrarsal fyrir eitt þúsund manns, líkamsræktarstöð og bílastæðahús, svo eitthvað sé nefnt. Alls munu um tólf þúsund manns starfa í byggingunni.

Þá verður ekki eina einustu sléttu rúðu að finna í byggingunni. Þýskur glerframleiðandi hefur þróað gler sem aldrei hefur verið framleitt áður en um sex kílómetrar af bognu gleri verða notaðir í bygginguna.

Alls munu um tólf þúsund manns starfa í byggingunni.
Um sex kílómetrar af bognu gleri verða notaðir í bygginguna.
Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna er talinn verða rúmir tæpir sex hundruð milljarðar þegar upp er staðið.
Byggingin mun hýsa skrifstofur Apple, fyrirlestrarsal fyrir eitt þúsund manns, líkamsræktarstöð og bílastæðahús, svo eitthvað sé nefnt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×