Fótbolti

Sigurður Ragnar boðaður til Englands í viðtal

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ragnar kom íslenska kvennalandsliðinu í átta liða úrslit á Evrópumótinu í Svíþjóð.
Sigurður Ragnar kom íslenska kvennalandsliðinu í átta liða úrslit á Evrópumótinu í Svíþjóð. Nordicphotos/Getty
„Þetta væri algjört draumastarf,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu.

Sigurður Ragnar hefur verið boðaður í starfsviðtal hjá enska knattspyrnusambandinu sem leitar að nýjum þjálfara fyrir kvennalandslið sitt. Sigurður sótti um starfið á dögunum.

„Ég veit ekki hve margir voru boðaðir. Líklega á bilinu sex til tíu,“ segir Sigurður Ragnar. Hann segir fulltrúa sambandsins hafa tilkynnt sér að nokkrir úr þeim hópi yrðu í framhaldinu boðaðir í annað viðtal. Í kjölfarið yrði gengið frá ráðningu.

Englendingar mega engan tíma missa í leit sinni að landsliðsþjálfara. Liðið á leiki framundan í mánuðinum í undankeppni HM 2015 og þurfa nýtt blóð í brúna. Hope Powell, sem stýrði skútunni í fimmtán ár, var látin fara í sumar eftir dapran árangur á Evrópumótinu í Svíþjóð.

Algengt er að enska knattspyrnusambandið auglýsi þjálfarastörf sín til umsóknar. Á dögunum var Gareth Southgate einmitt ráðinn þjálfari 21 árs liðs karla eftir að tíu umsækjendur voru boðaðir í viðtal.

Sigurður Ragnar hefur sjálfur kynnst umsóknarferli sem þessu. Hann sótti um starf hjá skoska knattspyrnusambandinu fyrir tveimur árum og var nærri því að landa starfinu.

„Ég sótti um starf performance director,“ segir Sigurður Ragnar sem var boðaður í tvö viðtöl vegna starfsins. Hollendingurinn Mark Wotte var ráðinn í starfið.

Sigurður segist hlakka til að fara utan og fara í viðtalið. Um draumastarf sé að ræða.

„Það væri mikil upplifun að starfa á St. George's Park fyrir eitt stærsta knattspyrnusamband í heimi,“ segir Sigurður. Það væri frábært að hafa aðgang að öllum þeim tækjum og tólum sem séu fyrir hendi. Starfið sé þó langt í frá í hendi en hann líti á það sem glæsilegan árangur að vera boðaður í viðtalið.

„Ef þetta gengur ekki eftir myndi ég skoða möguleika hérna heima,“ segir Sigurður Ragnar. Bæði Fram og ÍA eru í leit að þjálfurum fyrir meistaraflokka félagsins karlamegin.

„Það er þessi árstími,“ segir Sigurður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×