Fótbolti

Ferill Katrínar í myndum og tölum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín og Hrefna Huld Jóhannesdóttir bregða á leik í aðdraganda bikarúrslitaleiksins árið 2008.
Katrín og Hrefna Huld Jóhannesdóttir bregða á leik í aðdraganda bikarúrslitaleiksins árið 2008. Mynd/Valli
Katrín Jónsdóttir leikur sinn 133. og að öllum líkindum síðasta landsleik þegar kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Sviss í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld.

Ferill landsliðsfyrirliðans er glæstur hvert sem litið er. Hún hefur verið sigursæl sem leikmaður í félagsliði og leiðtogi kvennalandsliðsins í rúman áratug.

Á ferli sínum spilaði Katrín með Breiðabliki, Stjörnunni og Valhér heima. Þá nutu Kolbotn í Noregi og Djurgården í Svíþjóð þjónustu hennar þar til hún gekk í raðir Umeå fyrir yfirstandandi leiktíð. Hún hefur gefið út að hún muni leggja skóna á hilluna í lok leiktíðar.

Hér að neðan gefur að líta feril Katrínar Jónsdóttur í tölum en tölfræðin er tekin saman af Óskari Ófeigi Jónssyni. Að ofan má sjá myndasyrpu frá ferli miðvarðarins sem varð 36 ára í maí.

11273

Katrín er búinn að spila 11273 mínúturfyrir íslenska kvennalandsliðið eða með öðrum orðum í 187 klukkutíma og 53 mínútur.

126

Katrín hefur verið í byrjunarliðinu í 126 landsleikjum eða í öllum leikjum nema sex.

90

Katrín spilar í kvöld sinn 90. landsleik sem miðvörður en hún hefur einnig spilað á miðjunni (23), sem bakvörður (15) og sem framherji (5).

75

Katrín hefur spilað 75 keppnisleiki fyrir landsliðið þar af hafa 45 verið í Evrópukeppni.

72

Katrín mun í kvöld leiða íslenska liðið inn á völlinn í 72. sinn sem fyrirliði.

52

Katrín hefur tekið þátt í 52 sigurleikjum með landsliðinu en 61 leikja hennar hafa tapast.

31

Sviss verður 31. þjóðin sem Katrín mætir með íslenska landsliðinu

30

Katrín spilar 30. landsleikinn sinn á Laugardalsvellinum í kvöld.

21

Katrín er fjórða markahæsta landsliðskonan.

10

Katrín hefur spilað flesta landsleiki sína á móti Svíþjóð en hún hefur níu sinnum mætt Noregi og Þýskalandi.

8

Freyr Alexandersson er áttundi landsliðsþjálfarinn sem Katrín spilar fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×