Viðskipti erlent

Fingrafaraskanni í nýjasta iPhone símanum?

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Er þetta iPhone 5S? Myndir af nýjum vörum frá iPhone hafa verið að leka á vefinn að undanförnu.
Er þetta iPhone 5S? Myndir af nýjum vörum frá iPhone hafa verið að leka á vefinn að undanförnu.
Búist er við því að Apple kynni í dag iPhone 5S og 5C sem er rökrétt framhald af iPhone 5 símanum. Kynning hjá Apple hefst klukkan 18 að íslenskum tíma þar sem fyrirtækið ætlar að kynna nýjar vörur frá fyrirtækinu. Ekki er tilgreint hvað á nákvæmlega að kynna en fastlega er búist við því að ný útgáfa af iPhone líti dagsins ljós.

Samkvæmt fregnum þá er talið að nýjasta útgáfan af iPhone símanum verði með fingrafaraskanna sem muni auka er öryggi eiganda símans til muna. Jafnframt á myndavél símans að vera talsvert betri en í iPhone 5 símanum.

Allt kemur þetta betur í ljós síðar í dag þegar kynning Apple fer fram. Vísir mun fylgjast grannt með og greina frá því sem fram fer í höfuðstöðvum Apple í Kaliforníu.

Hér fyrir neðan má sjá ítarlega umfjöllun CNET á kynningunni sem nú stendur yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×