Viðskipti erlent

Peningar bankanna ekki raunverulegir

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Ole Bjerg segir í bók sinni að vondir peningar flæði úr bönkunum á hverjum degi
Ole Bjerg segir í bók sinni að vondir peningar flæði úr bönkunum á hverjum degi
Danski félagsfræðingurinn Ole Bjerg segir í bók sinni, Gode penge, að vondir peningar flæði út úr bönkunum á hverjum degi.

Hann segir bankana lána pening sem þeir eigi ekki í raun og veru. Þar með skapa þeir sífellt meiri pening, hækki þannig skuldir samfélagsins og komi af stað krísu eftir krísu. Ef fólk myndi gera sér grein fyrir þessu myndi það gera uppreisn gegn kerfinu.

Ole Bjerg segir millifærslur bankanna vera sýndarmennsku og enginn raunverulegur peningur komi við sögu í daglegum viðskiptum. „Ef peningaseðlar eru aldrei notaðir og alltaf er notast við kreditfærslur, þá vaxa peningarnir og vaxa án þess að Seðlabankinn prenti einn einasta seðil,“ segir Ole Bjerg í viðtali við Politiken.

Í viðtalinu tekur félagsfræðingurinn fram að erfitt sé að útskýra sýndarmennskuna án þess að svima. Ole Bjerg hefur fjallað mikið um fjármálakerfið í Danmörku og er von á bók frá honum á ensku á næsta ári sem ber heitið Making Money- The Philosophy of Post-Credit Capitalism.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×