Viðskipti erlent

Instagram bannar öðrum að nota „Insta“ og „Gram“.

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Forsvarsmenn Instafram og Facebook ætla að taka fyrir að önnur forrit noti orðin „Insta“ og „Gram“. í nöfnum sínum.
Forsvarsmenn Instafram og Facebook ætla að taka fyrir að önnur forrit noti orðin „Insta“ og „Gram“. í nöfnum sínum. mynd/afp
Instagram hefur ákveðið að banna öðrum forritum eða öppum að hafa annað hvort orðið „Insta“ eða „Gram“ í heiti sínu. Þetta kemur fram í frétt Techcrunch.com.

Forsvarsmenn Instagram hafa þegar byrjað að senda tölvupósta til þeirra viðbóta sem nota annað hvort orðanna. Þeir krefjast þess að þess að framleiðendur forritanna taki þessi orð úr nöfnum þeirra.

Instagram hefur hingað til verið verndað vöruheiti en ekki orðin „Insta“ eða „Gram“. Þar til nú hefur fyrirtækið jafnvel hvatt aðra til þess að nota annað hvort orðanna í forritum sínum.

Instagram sem er nú í eigu Facebook, getur þó aðeins bannað þeim forritum sem tengjast í gegnum hugbúnað Instagram, API (Application programming interface), að nota heitið. Hér eftir munu öpp sem hafa annað hvort orðið í heiti sínu ekki geta tengst í gegnum Instagram appið. 

Öppin, Statigram, Luxogram, Webstagram, Instadrop og fjöldi annarra nota annað hvort orðið í heiti sínu. Þessar viðbætur þurfa nú að finna nýtt heiti.

Þessi forrit hafa verið mikið sótt, sem dæmi nota yfir ein milljón manns Luxogram appið. Statigram hefur þótt sérstaklega gagnlegt forrit þar sem notendur Instagram geta skoðað tölfræðilegar upplýsingar um Instagram aðgang sinn en Instagram býður ekki sjálft upp á þann möguleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×