Viðskipti erlent

Google segir notendur Gmail ekki geta gert ráð fyrir friðhelgi tölvupósts

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
John Simpson hjá neytendasamtökunum Consumer Watchdog varar fólk við að nota Gmail.
John Simpson hjá neytendasamtökunum Consumer Watchdog varar fólk við að nota Gmail.
Tölvufyrirtækið Google segir að notendur frípóstþjónustunnar Gmail ættu ekki að gera ráð fyrir því að tölvupóstur þeirra verði ekki skoðaður af starfsmönnum fyrirtækisins.

Þetta segja talsmenn fyrirtækisins í skjölum sem lögð hafa verið fram til dómstóla, en fyrirtækið reynir nú að fá hópmálsókn vegna brota á lögum um hleranir vísað frá. Google er gefið að sök að snuðra í tölvupóstum notenda til þess að ná betur til þeirra með auglýsingum.

Google segir að með málsókninni sé verið að láta hefðbundna viðskiptahætti, sem hafi verið stundaðir frá stofnun fyrirtækisins, líta út fyrir að vera glæpsamlega. Allir notendur tölvupósts verði að gera ráð fyrir því að unnið sé með póst þeirra.

„Google hefur loksins viðurkennt að bera enga virðingu fyrir einkamálum fólks,“ segir John Simpson hjá neytendasamtökunum Consumer Watchdog. „Takið Google á orðinu. Ef ykkur er annt um friðhelgi skuluð þið ekki nota Gmail.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×