Viðskipti erlent

Yahoo! fær andlitslyftingu

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
mynd/afp
Leitarsíðan Yahoo! ætlar að breyta merkinu sínu sem hefur verið óbreytt í bráðum tvo áratugi. Yahoo ætlar að koma með nýtt merki á hverjum degi í 30 daga en 4. september næstkomandi mun eitt þessara 30 merkja verða valið til þess að verða nýtt merki leitarsíðunnar.

Þetta kemur fram á fréttasíðu CNBS. Þar kemur jafnframt fram að þegar sé búið að ákveða hvaða merki verði fyrir valinu. Hins vegar hafi þeir viljað sýna sköpunarkraftinn sem nú sé innan fyrirtækisins undir stjórn nýs forstjóra Yahoo!, Marissa Mayer.  

Hér fyrir neðan má sjá myndband frá Yahoo!. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×