Viðskipti erlent

Aftur hrun á japanska markaðinum

Nikkei vísitalan í Tókýó hrundi um rúmlega 6% í nótt. Þar með hefur vísitalan lækkað um 21% frá því hún náði hámarki undanfarin fimm ár þann 23. maí s.l.

Aðrar helstu vísitölur í Asíu voru einnig í frjálsu falli í nótt. Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um tæp 3% og vísitalan í kauphöllinni í Shanghai lækkaði um 3,5%, að því er segir í frétt á vefsíðu börsen.

Það sem liggur að baki þessum lækkunum er ótti fjárfesta við að bandaríski seðlabankinn ætli að fara að hætta eða draga úr gífurlegri seðlaprentun sinni, þ.e. draga úr eða hætta kaupum á skuldabréfum. Bankinn hefur keypt skuldabréf fyrir 85 milljarða dollara á mánuði frá því í september s.l. til að kynda undir efnahagsbata í Bandaríkjunum.

Lækkunin á Asíumörkuðum kom í kjölfar lækkunar á Wall Street í gærkvöldi. Þá eru rauðar tölur í öllum helstu kauphöllum í Evrópu þessa stundina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×