Viðskipti erlent

Venesúelabúar kynda undir fasteignabólu í Miami

Efnaðir Venesúelabúar hafa verið áberandi á fasteignamarkaðinum í Miami á Flórída undanfarin ár. Frá því að Samband fasteignasala í borginni fór að skrá sérstaklega kaup erlendra manna á fasteignum árið 2006 hafa Venesúelabúar keypt meira af þeim en bæði Brasilíumenn og Argentínumenn.

Fjallað er um málið á vefsíðu CNNMoney þar sem segir að Venesúelabúar hafi kynt undir fasteignabólunni í borginni sérstaklega eftir að Hugo Chavez var endurkjörinn forseti Venesúela í fyrrahaust. Þótt Chavez heitinn hafi almennt verið talin hetja meðal almennings í landinu voru efnaðir Venesúelabúar á öðru máli og töldu hann harðstjóra.

Fasteignamarkaðurinn í Miami hrundi eins og í mörgum öðrum stórborgum vestan hafs í kjölfar fjármálakreppunnar 2008. Hann hefur blómstrað að nýju þökk sé efnuðum Venesúelabúum og fleiri útlendingum sem fjárfest hafa grimmt í íbúðum og einbýlishúsum í borginni. Á fyrsta ársfjórðungi ársins hefur íbúðasalan aukist um rúm 10% og verð íbúða hækkað um 23% miðað við sama tímabil í fyrra.

Staðgreitt með reiðufé

Fram kemur að af þeim 23.000 íbúðum sem stóðu enn óhreyfðar á fasteignamarkaði borgarinnar fyrir tveimur árum síðan séu aðeins um 600 eftir á söluskrá. Það má sjá hve stórt hlutfall af þeim hefur verið keypt af útlendingum með því að skoða greiðslufyrirkomulagið. Útlendingar staðgreiða í reiðufé þær fasteignir sem þeir kaupa.  Þannig voru um 45% af öllum einbýlishúsum keypt með reiðufé og 77% af öllum íbúðum í fjölbýlishúsum á fyrsta ársfjórðungi ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×