Viðskipti erlent

Afsteypur af verkum Rodins seljast fyrir fúlgur fjár

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar
Hugsuðurinn eftir Rodin.
Hugsuðurinn eftir Rodin.
Tvær afsteypur af meistarverki Rodins, Hlið Helvítis, voru seld fyrir meira en 1,9 milljarð á uppboði í New York og í vikunni fór afsteypa af Hugsuðinum fyrir metfé eða á 1,8 milljarð.

Þetta slær fyrra met en afsteypa hinnar frægu styttu Rodin seldist á 1,4 milljarð árið 2010. Til eru um tuttugu afsteypur Hugsuðarins en sú frægasta, sem gerð er úr bronsi, er í safni í París.

Sotheby´s hefur ekki upplýst hver kaupandinn er. En verkið hafði áður verið í eigu útgefandans fræga Ralph Pulitzers sem og William Paley, sem er yfirframkvæmdastjóri hjá CBS.

Listaverk hafa verið að fara fyrir metfé að undanförnu en nýverið seldist verk eftir Paul Cezanne, Eplin, fyrir tæpa fimm milljarða sem er næstmesta summa sem fengist hefur fyrir listaverk síðan kreppan hófst árið 2008. Hæsta sem verð sem fengist hefur fyrir verk að undanförnu er þegar Ópið eftir Edvard Munch var boðið upp í fyrra og fór þá á hvorki meira né minna en 14 milljarða. „Erfitt að toppa það," segir Simon Shaw, sem er yfir deild impressíonsta og nútímalistar hjá Sotheby´s.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×