Viðskipti erlent

Gott uppgjör hjá Actavis, eign Björgólfs eykst um 1,2 milljarða

Samheitalyfjafyrirtækið Actavis skilaði mun betra uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi en sérfræðingar höfðu spáð. Eftir birtingu uppgjörsins hækkuðu hlutir í Actavis um rúm 2% en það þýðir að hlutafjáreign Björgólfs Thors Björgólfssonar jókst um 1,2 milljarða króna á markaðinum í New York í gærdag.

Í frétt um málið á Reuters segir að Actavis hafi skilað tæplega 103 milljóna dollara tapi á ársfjórðungnum. Tapið er tilkomið vegna sameiningar Actavis og Watson í vetur og kaupa á lyfjafyrirtækinu Uteron Pharma. Sérfræðingar áttu von á töluvert meira tapi vegna þessa.

Tekjur Actavis jukust um 24% miðað við sama tímabil í fyrra og námu 1,9 milljörðum dollara sem var nærri því á pari við væntingar sérfræðinga.

Reuter hefur eftir Chris Schott greinanda hjá JP Morgan að Actavis sé í einni bestu stöðunni í heiminum hvað samheitalyfjafyrirtæki varðar, hvort sem litið sé til skemmri eða lengri tíma.

Hvað fyrrgreindan ágóða Björgólfs Thors varðar hér að framan kom fram í fréttum í gær að hann ætti um 60 milljarða virði af hlutafé í Actavis. Þar með bætti sú eign við sig um 1,2 milljörðum kr. miðað við hækkunina í New York í gærdag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×