Peugeot Loeb 4,8 sek. í 200 Finnur Thorlacius skrifar 5. maí 2013 11:30
Bíllinn er 875 hestöfl og með risastórar vindskeiðar. Margfaldi heimsmeistarinn í rallakstri, Sebastian Loeb, verður ekki lengi upp Pikes Peak fjallið í samnefndri klifurkeppni í sumar ef marka má getutölur bílsins sem hann verður á. Peugoet bíll hans er 875 hestöfl sem koma úr 3,2 lítra V6 vél með tveimur forþjöppum. Hann er aðeins 1,8 sekúndu í 100, 4,8 sekúndur í 200 og 7 sekúndur í 240 kílómetra hraða. Þetta ætti að duga honum til sigurs með alla sína ökuhæfni í handraðanum, svo fremi sem hann láti ekki allt aflið hlaupa með sig í gönur og endi utanvegar. Bíll Loeb keppir í flokki þar sem allt er leyfilegt í breytingu bílanna. Þar verður keppnin sannarlega hörð og margir búnir að boða koma sína með brjálæðislega bíla.Mikið er lagt í bíl Loeb
Mest lesið Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent