Viðskipti erlent

Loksins hagnaður af rekstri FIH bankans

Hagnaður varð af rekstri FIH bankans í Danmörku á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 16 milljónum danskra króna eða um 330 milljónum kr. fyrir skatta. Þetta er besta uppgjör bankans á síðustu 10 ársfjórðungum.

Í frétt um málið á vefsíðu Börsen segir að bankinn sé nú að ljúka við að borga til baka afganginn af 50 milljarða danskra kr. ríkisábyrgð sem hann fékk fyrir þremur árum. Verða síðustu 10 milljarðarnir gerðir upp á yfirstandandi ársfjórðungi.

Eigið fé FIH bankans nemur rúmum 5,5 milljörðum danskra króna og er eiginfjárhlutfallið komið í rúm 20% eða vel yfir lágmarksmörkum.

Í fréttinni kemur fram að verulega hafi dregið úr afskriftum bankans á ónýtum lánum og námu þær 35 milljónum danskra kr. á ársfjórðungum.

Eins og oft hefur komið fram í fréttum eru endurheimtur Seðlabanka Íslands af sölunni á FIH bankanum árið 2010 bundnar við gengi FIH fram til ársloka 2014. Almennt hefur verið talið að Seðlabankinn hafi hingað til tapað yfir helmingnum af söluverðinu sem var 5 milljarðar danskra kr. Fyrrgreint ársuppgjör gæti bent til þess að þetta tap Seðlabankans verði ekki eins mikið þegar upp er staðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×