Viðskipti erlent

Ný auglýsing hneykslar: Berlusconi með fullan bíl af konum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hér má sjá umrædda auglýsingu.
Hér má sjá umrædda auglýsingu.
Auglýsingafyrirtækið JWT India bjó á dögunum til nokkrar auglýsingar fyrir Ford Figo en á teiknuðum myndum sést Silvio Berlusconi veifa friðarmerkinu í framsæti bíls. Aftur í bílnum eru svo glæsikonur sem eru bundnar og með einhverskonar kynlífsleikföng.

Í frétt á vefnum businessindsider kemur fram að að ekki sé ljóst hvort Ford hafi samþykkt auglýsingarnar eða hvort auglýsingastofan hafi verið að birta myndir sem einungis hafi verið ætlað að sýna sköpunargáfu hönnuða. JWT India er auglýsingastofa Ford á Indlandi.

Þar segir líka að Indland sé þekkt fyrir að þar í landi séu auglýsingar sem byggja á allt öðru en „pólitískri rétthugsun" vinsælar. Þar séu til dæmis birtar auglýsingar þar sem Hitler er aðalpersónan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×